Landstólpi, vélabæklingur 2021
*Verð gildir ef pantað er fyrir 21. janúar 2022. Öll verð eru birt án vsk. Nánari upplýsingar veita sölumenn vélasviðs Sími 480 5600 - landstolpi@landstolpi.is SCRAPE IT - PUMP IT - STORE IT - MIX IT - APPLY IT Storth Ltd. sérhæfir sig fyrst og fremst í mykjubúnaði og framleiðir til dæmis sköfur, dælur, hrærur, tanka og slöngubúnað til mykjudreifingar. Landstólpi er með söluumboð fyrir tæki og búnað frá Storth, vörur sem henta afar vel við íslenskar aðstæður og bændum hér eru að góðu kunnar. Mikil umræða hefur verið um væntanlega hækkun áburðar- verðs. Vegna þess hafa menn verið að leita leiða til að vega upp á móti þessari fyrirsjáanlegu kostnaðaraukningu. Meðal þess sem hægt er að gera er að nota slöngubúnað aftan á haugsuguna hjá sér. Með því næst allt að 10% betri nýting á köfnunarefni úr skítnum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að dreifingin er færð mun nær túninu eða jafnvel, með niðurfellingabúnaði, alveg í svörðinn. Þannig fær köfnunarefnið lítið sem ekkert svigrúm til að gufa upp í andrúmsloftið og nýtist í staðinn sem áburður. Fleiri kostir eru við þessa aðferð. Til að mynda er mun meira flæði úr tanknum og því tekur dreifingin minni tíma en ella. Dreifingin verður mun nákvæmari og mun þægilegra að hafa stjórn á henni í kringum viðkvæm svæði. Slöngubúnaðurinn fæst í nokkrum útfærslum. Hann kemur með öllum tengjum og festingum. Búnaðurinn passar á flest allar gerðir af haugsugum. Við eigum til á lager úrval af haugdælum og hrærum frá Storth. Gríðarlega afkastamikil tæki sem hafa glatt eigendur sína mikið gegnum tíðina og gert skít- verkin að tilhlökkunarefni. SLÖNGUBÚNAÐUR HAUGDÆLUR OG HAUGHRÆRUR 7,5 METRA SLÖNGUBÚNAÐUR Áramótaverð: 2.190.000 kr. Verð 2.290.000 kr. 7,5 METRA NIÐURFELLINGABÚNAÐUR Áramótaverð: 2.890.000 kr. Verð 2.990.000 kr. Hispec - Heimasíða Storth - Heimasíða Hispec - Youtube Storth - Youtube
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==