Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða 13 afla, eftirlit með veiðum og greiðslu veiðigjalds, gilda, eftir því sem við á, um skip sem hafa leyfi skv. 1. mgr. og öflun sjávargróðurs frá þeim. □ 4 Heimilt er að setja skilyrði í leyfi skv. 1. mgr. er lúta að búnaði skipa, merkingum afla, áhrifum á sjávargróður og aðferðum við öflun hans. □ 5 Skip sem stunda öflun á sjávargróðri í atvinnuskyni skulu leggja upp aflann í móttökustöð fyrir viðkomandi svæði skv. 15. gr. c. □ 6 Ákvæði þessarar greinar gilda ekki um ræktun sjávargróðurs, sölvatekju eða aðra minni háttar töku sjávargróðurs sem nemur minna en 10 tonnum á ári, eftir því sem nánar er heimilt að mæla fyrir um í reglugerð.] 2) 1) L. 49/2017, 5. gr. 2) L. 49/2017, 5. gr. a. [15. gr. b. Svæði til nýtingar. □ 1 Áður en sá sem hefur leyfi skv. 15. gr. a hefur öflun sjávargróðurs innan netlaga sjávarjarðar þarf að hafa náðst samkomulag við landeiganda um heimild til öflunarinnar. □ 2 Ráðherra er heimilt að skipta nýtingarsvæðum sjávargróðurs, utan netlaga sjávarjarða, í tiltekin afmörkuð svæði og takmarka öflun sjávargróðurs utan þeirra. Þá er heimilt að banna tímabundið öflun innan þessara nýtingarsvæða til að gefa tíma til endurvaxtar á sjávargróðri eftir nýtingu. Áður en ákvarðanir eru teknar samkvæmt þessari málsgrein skal að jafnaði leita umsagnar Hafrannsóknastofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og annarra aðila eftir atvikum, svo sem Breiðafjarðarnefndar við nýtingu sjávargróðurs í Breiðafirði.] 1) 1) L. 49/2017, 5. gr. b. [15. gr. c. Leyfi til starfrækslu móttökustöðvar fyrir þang. □ 1 Ráðherra er heimilt með reglugerð, 1) að fenginni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, að mæla fyrir um að enginn megi starfrækja stöð til móttöku þangs til þurrkunar og frekari vinnslu, í atvinnuskyni, frá tilteknum afmörkuðum svæðum nema hafa til þess leyfi Fiskistofu. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi. Umsókn skal hafa að geyma áætlun um fjármögnun og uppbyggingu mannvirkja og annars búnaðar, upplýsingar um þekkingu forsvarsmanna á fyrirhugaðri starfsemi, rökstudda áætlun um aflamagn og hvernig staðið verði að öflun þangsins, þ.m.t. aðferðir við slátt, og áform um eignarumráð eða samstarf við eigendur skipa skv. 15. gr. a, auk annarra upplýsinga sem þýðingu geta haft skv. 2. mgr. □ 2 Berist umsóknir um leyfi til móttöku meiri afla en nemur ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, að teknu tilliti til allra aðstæðna, þ.m.t. áformaðra aðferða við töku þangsins, er heimilt að úthluta leyfum til takmarkaðs fjölda umsækjenda þannig að hver fái heimild til móttöku tiltekins afla á ári eða lengra tímabili. Við úthlutun skal leitast við að ekki færri en tveir aðilar hafi heimild til móttöku frá viðkomandi svæði. Þá er heimilt við mat á hæfni umsækjenda að líta til verk- og tækniþekkingar, fjárhagslegrar stöðu, framlags til rannsókna á þangi og vistkerfi stranda og áhrifa fyrirhugaðrar starfsemi á byggðir þar sem gætir langvarandi fólksfækkunar og einhæfs atvinnulífs. □ 3 Heimilt er að binda leyfi skv. 1. mgr. þeim skilyrðum sem þurfa þykir með tilliti til eftirlits með nýtingunni og skipulags nýtingar. Leyfishöfum er skylt að tilkynna um móttekinn afla, m.a. um hvar hann er tekinn, svo sem nánar er greint í reglugerð. Leyfi gilda til 15 ára í senn og skulu endurskoðuð, með tilliti til heimilaðs aflamagns o.fl. , eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Heimilt er að breyta eða afturkalla leyfi hvenær sem er ef það telst nauðsynlegt til verndar umhverfinu eða til að endurskipuleggja stjórn nýtingar, sé um að ræða gróf eða endurtekin brot á lögum þessum, öðrum lögum á sviði fiskveiðistjórnar eða skilyrðum leyfis, sé leyfið ekki nýtt eða sé það aðeins nýtt í takmörkuðum mæli.] 2) 1) Rg. 90/2018. 2) L. 49/2017, 5. gr. c.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==