Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar 25 leyfissviptingar og til hvaða tímabils svipting nái. Þá skulu birtar opinberlega ákvarðanir um afturköllun heimilda [skv. 17. gr. laga þessara]. 1) 1) L. 163/2006, 5. gr. 22. gr. □ 1 Upplýsingar um aflahlutdeild einstakra skipa, úthlutun aflamarks til þeirra, afla einstakra skipa og ráðstöfun aflaheimilda eru opinberar upplýsingar sem öllum er heimill aðgangur að. Fiskistofa skal reglulega birta upplýsingar um þau skip sem veitt hafa umfram aflaheimildir. Þá skal Fiskistofa árlega birta upplýsingar um álagningu gjalds vegna ólögmæts sjávarafla á liðnu fiskveiðiári. 23. gr. □ 1 Brot gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða … 1) fangelsi allt að sex árum. □ 2 [Við fyrsta brot skal sekt eigi nema hærri fjárhæð en 4.000.000 kr. eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekað brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 8.000.000 kr., sömuleiðis eftir eðli og umfangi brots.] 2) □ 3 Beita skal ákvæðum laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla vegna brota gegn lögum þessum eftir því sem við á. 1) L. 82/1998, 225. gr. 2) L. 22/2005, 1. gr. 24. gr. □ 1 Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 23. gr. má ákvarða lögaðila sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa hafa gerst sekir um brot. □ 2 Tilraun og hlutdeild í brotum á lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum. 25. gr. □ 1 … 1) 1) L. 88/2008, 233. gr. V. KAFLI. … VI. KAFLI. Ýmis ákvæði. 30. gr. □ 1 Ráðherra getur með reglugerð 1) kveðið nánar á um framkvæmd laga þessara. 1) Rg. 236/2019 (um hrognkelsaveiðar árið 2019), s br. 338/2019 . Rg. 601/1997 ( um löndun á bræðslufiski erlendis) . Rg. 746/2016 ( um afladagbækur), sbr. 92/2018 . Rg. 54/2003 ( um mælingar á vinnslunýtingu um borð í skipum sem vinna afla um borð) . Rg. 659/2014 (um vigtun og skráningu meðafla við veiðar á uppsjávarfiski). R g. 214/2010 ( um humarveiðar), sbr. 1094/2011, 786/2013, 1067/2013, 10/2014, 1010/2014, 1063/2015, 717/2016, 4/2017 og 258/2019. Rg. 258/2012 ( um rækjuveiðar innfjarða), sbr . 375/2012, 854/2012, 865/2012, 964/2012, 355/2013, 379/2013, 540/2013, 936/2013, 519/2014, 660/2014, 464/2015, 503/2015, 1148/2015, 593/2016, 1198/2016, 384/2017, 415/2018, 431/2018 og 475/2019. Rg. 431/2013 ( um stjórn veiða á djúpsjávartegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC)), sbr. 339/2014. Rg. 433/2013 ( um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja), sbr. 341/2014 o g 611/2014. Rg. 994/2013 ( um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla). Rg. 1010/2013 ( um veiðar á ígulkerum) . Rg. 711/2018 ( um veiðar á kúfskel) . Rg. 633/2019 ( um veiðar á beitukóngi í gildrur).

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==