Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands 27 Lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. 1. gr. □ 1 Tilgangur laga þessara er að stuðla að viðgangi og hagkvæmri nýtingu nytjastofna innan íslenskrar fiskveiðilandhelgi og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. 2. gr. □ 1 Til nytjastofna samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi og sérlög gilda ekki um. □ 2 Til fiskveiðilandhelgi Íslands telst hafsvæðið frá fjöruborði að ytri mörkum efnahagslögsögu Íslands eins og hún er skilgreind í lögum nr. 41 1. júní 1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn. 3. gr. □ 1 Erlendum skipum eru bannaðar allar veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með ákvæði þessu eru ekki skert þau réttindi sem veitt hafa verið eða kunna að verða veitt öðrum ríkjum samkvæmt milliríkjasamningum. 4. gr. □ 1 Aðeins þeim íslensku skipum, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands samkvæmt ákvæðum laga nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, 1) með síðari breytingum, er heimilt að stunda veiðar í fiskveiðilandhelginni. 1) L. 38/1990 endurútgefin, sbr. 4. gr. l. 42/2006, sem l. 116/2006. 5. gr. □ 1 Íslenskum skipum eru bannaðar veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi Íslands nema á þeim veiðisvæðum og veiðitímum sem tilgreind eru í þessari grein, enda undanþiggi ráðherra ekki tiltekin svæði slíkum veiðum. Þegar rætt er um viðmiðunarlínu er átt við línu sem dregin er umhverfis landið á milli eftirtalinna staða: 1. Horn (grp. 1) 66°27'4 N – 22°24'3 V 2. Selsker (viti) 66°07'5 N – 21°30'0 V 3. Ásbúðarrif (grp. 2) 66°08'1 N – 20°11'0 V 4. [Siglunes (grp. 3) 66°11'9 N – 18°49'9 V] 1) 5. Flatey (Skjálfanda) (grp. 4) 66°10'3 N – 17°50'3 V 6. Mánáreyjar (Lágey) (grp. 5) 66°17'8 N – 17°06'8 V 7. Rauðinúpur (grp. 6) 66°30'7 N – 16°32'4 V 8. Rifstangi (grp. 7) 66°32'3 N – 16°11'8 V 9. Hraunhafnartangi (grp. 8) 66°32'2 N – 16°01'5 V 10. Langanes (grp. 9) 66°22'7 N – 14°31'9 V 11. Skálatáarsker 65°59'7 N – 14°36'4 V 12. Almenningsfles 65°33'1 N – 13°40'5 V 13. Glettinganes (grp. 10) 65°30'5 N – 13°36'3 V 14. Norðfjarðarhorn (grp. 11) 65°10'0 N – 13°30'8 V 15. Gerpir (grp. 12) 65°04'7 N – 13°29'6 V 16. Hólmur (Seley) (grp. 13) 64°58'9 N – 13°30'6 V 17. Skrúður (Þursi) (grp. 15) 64°54'1 N – 13°36'8 V

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==