Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Stjórn fiskveiða 2019/2020 – Lög og reglugerðir 74 3. Heimilt er að vigta heilan humar í umbúðum þegar að lokinni pökkun. Einungis skal draga þyngd umbúða frá heildarþyngd. □ 3 Á vigtarnótu skulu koma fram þau atriði sem tilgreind eru í 17. gr. Um skil á vigtarnótu gilda ákvæði 16. gr. Vigtun á hörpudiski. 33. gr. □ 1 Hörpudiskur skal veginn á hafnarvog skv. ákvæðum 7. gr. Um vigtun hörpudisks gilda að öðru leyti eftirfarandi reglur: 1. Fari endanleg vigtun fram á hafnarvog er vigtarmanni heimilt að draga allt að 4% frá vegnum afla vegna áætlaðra aðskotahluta í aflanum. Þessi frádráttur skal koma fram á vigtarnótu og er því aðeins leyfður að vigtarmaður á hafnarvog staðfesti með áritun á vigtarnótu að aðskotahlutir hafi verið í aflanum við löndun. 2. Sé aflinn endurvigtaður hjá endurvigtunarleyfishafa, skal það gert svo fljótt sem við verður komið og með eftirfarandi hætti: a. Löggiltur vigtarmaður sem annast skal vigtunina skal velja af handahófi og vigta úrtak sem nemur a.m.k. 0,5% af farmi. Við endurvigtunina skal úrtakið brúttóvigtað síðan skulu hrúðurkarlar, dauðar skeljar og aðrir aðskotahlutir hreinsaðir frá og úrtakið síðan vegið að nýju og þannig fundinn nettóþungi. b. Löggiltur vigtarmaður sem annast endurvigtun afla skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem tilgreina skal eftirfarandi atriði: - Nafn skips, skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri. - Veiðarfæri. - Löndunarhöfn og löndunardag. - Viðtakanda afla. - Fjölda íláta. - Brúttóafla á hafnarvog (afli og aðskotahlutir). - Brúttóþunga úrtaks. - Þunga hrúðurkarla. - Þunga annarra aðskotahluta. - Nettóþunga úrtaks. - Reiknað hlutfall hrúðurkarla og aðskotahluta í afla. Nettóafla (brúttóafli samkvæmt hafnarvog að frádregnum hrúðurkörlum og öðrum aðskotahlutum í afla). Vigtun á ísaðri rækju. 34. gr. □ 1 Ísuð rækja skal vegin á hafnarvog skv. ákvæðum 7. gr. □ 2 Um ísaða rækju sem vigtuð er samkvæmt endurvigtunarleyfi gildir eftirfarandi: Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtunina skal velja úrtak í samræmi við reglur sem ráðuneytið setur um lágmarksúrtak við vigtun og láta það í sérbúna ísskilju. Hitastig vatns í ísskilju skal ekki vera yfir 15°C. Ísinn skal fleyttur ofan af og vatn látið síga af rækjunni í allt að tvær klukkustundir áður en rækjan er vegin. Rækjufrystiskip. 35. gr. □ 1 Vega skal heildarafla af rækju sem er lausfryst í pokum eða fryst í blokkir á hafnarvog skv. 7. gr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==