Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir
Reglugerð nr. 746/2016, um afladagbækur 85 Reg lugerð um afladagbækur. 1. gr. □ 1 Reglugerð þessi gildir um allar veiðar íslenskra fiskiskipa hvort sem þær fara fram innan eða utan íslensku fiskveiðilögsögunnar, nema annað sé sérstaklega tekið fram í reglum um viðkomandi veiðar. 2. gr. □ 1 Allir skipstjórar íslenskra fiskiskipa sem stunda veiðar í atvinnuskyni skulu halda sérstakar afladagbækur. □ 2 Þær upplýsingar sem skráðar eru í afladagbækur skulu nýtast í vísindalegum tilgangi fyrir Hafrannsóknastofnunina, sem eftirlitsgögn fyrir Fiskistofu og Landhelgisgæslu og til annarra verkefna sem varða stjórnun fiskveiða. Að öðru leyti skulu upplýsingar úr afladagbókum vera trúnaðarmál milli ofangreindra aðila og skipstjóra. 3. gr. □ 1 Skipstjórum íslenskra fiskiskipa er skylt að halda rafræna afladagbók. □ 2 Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er skipstjórum fiskiskipa sem eru undir 10 BT að stærð og fiskiskipa sem eru undir 15 BT að stærð og fengu í fyrsta sinn haffærisskírteini fyrir 1. maí 2002 heimilt að halda afladagbók á bókarformi. □ 3 Þá er Fiskistofu heimilt að veita tilteknum fiskiskipum tímabundna undanþágu til að halda afladagbók á bókarformi vegna sérstakra aðstæðna, s.s. þegar aðstæður um borð í fiskiskipi eru þannig að ekki er unnt að færa rafræna afladagbók þar. □ 4 Við færslu rafrænna afladagbóka skal nota forrit sem hlotið hefur samþykki Fiskistofu og skulu skráningar vera samkvæmt leiðbeiningum Fiskistofu. Í rafrænar afladagbækur skal færa allar upplýsingar sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Allar breytingar sem kunna að vera gerðar á skráningum í rafrænar afladagbækur skulu vera sýnilegar og rekjanlegar. 4. gr. □ 1 Afladagbækur í bókarformi skulu vera innbundnar, í tvíriti og með númeruðum síðum. Skal Fiskistofa hafa yfirlit yfir hvaða síðunúmer eru í bókum sem ætlaðar eru til notkunar í hverju skipi. Óheimilt er að fjarlægja síður úr bókum, sbr. þó 9. gr. □ 2 Allt sem fært er í afladagbók á bókarformi, skal vera skýrt og læsilegt með varanlegu letri. Ekki má eyða eða gera á annan hátt ólæsilegt það sem eitt sinn hefur verið í þær fært þótt fyrst hafi verið misfært af vangá. Þurfi að gera breytingu á færslu skal það gert með annarri færslu eða þannig að hin ranga færsla verði áfram vel læsileg að leiðréttingu lokinni. 5. gr. □ 1 Óheimilt er að hefja veiðiferð nema búnaður til skráningar rafrænnar afladagbókar sé um borð, sbr. þó ákvæði 3. gr. Fiskistofu er heimilt að veita tímabundna undanþágu frá þessu ákvæði sé staðfest að búnaður til skráningar rafrænnar afladagbókar sé bilaður og skal skipstjóri þá, á meðan bilun stendur, halda afladagbók á bókarformi sem Fiskistofa lætur í té. Útgerð skips ber án tafar að tilkynna Fiskistofu um sérhverja bilun á búnaði til skráningar rafrænnar afladagbókar eða til sendingar upplýsinga úr rafrænni afladagbók enda leiði bilunin til þess að ekki sé unnt að skrá í afladagbók skipsins eða skila skráningum til Fiskistofu. Jafnframt skal útgerð skips láta lagfæra
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==