Stjórn fiskveida 2019/2020 - Lög og reglugerðir

Reglugerð nr. 676/2019, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 95 samkvæmt þessari grein einnig heimilt að miða við landaðan afla beggja skipanna í viðkomandi byggðarlagi. 7. gr. Ahending og flutningur aflamarks. □ 1 Fiskistofu er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að afhenda aflamark fiskiskips á grundvelli afla annars skips í eigu sama lögaðila. Jafnframt er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að flytja rétt til úthlutunar aflamarks milli skipa í eigu sama lögaðila. Óheimilt er að leigja skip annarra lögaðila til að uppfylla skilyrði um löndun afla til vinnslu samkvæmt þessari grein. Ráðherra er heimilt, að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar, að víkja frá ákvæðum þessarar greinar enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Um málsmeðferð og staðfestingu tillagna sveitarstjórna samkvæmt þessari grein skulu gilda ákvæði 3. gr. □ 2 Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fiskveiðiárið í fimm áföngum, 1/5 hverju sinni enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils sem fram kemur í 1. mgr. þessarar greinar, fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er Fiskistofu heimilt að úthluta áunnu aflamarki fiskveiðiársins 2019/2020 á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2020, enda hafi viðkomandi skip ekki flutt meira aflamark frá skipinu en til þess í lok fiskveiðiársins á undan. □ 3 Heimilt er að flytja aflamark einstakra fiskveiðiára sem úthlutað er samkvæmt þessari grein yfir á næsta fiskveiðiár og úthluta því með þeim aflaheimildum sem koma til úthlutunar á því fiskveiðiári. Aflamark sem er flutt frá eldra fiskveiðiári skal tilheyra aflamarki þess fiskveiðiárs sem hófst 1. september næst á undan úthlutun aflamarks. 8. gr. Lágmarksverð. □ 1 Verð fyrir afla sem landað er til vinnslu til að uppfylla skilyrði 6. gr. skal ekki vera lægra en það verð sem ákveðið er sem viðmiðunarverð af Verðlagsstofu skiptaverðs. 9. gr. Framsal. □ 1 Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Framsal aflamarks skal þó vera heimilt hafi fiskiskip efnt löndunar- og vinnsluskyldu í samræmi við 6. gr. 10. gr. Gildistaka. □ 1 Reglugerð þessi sem sett er, skv. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2019/2020. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2019.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==