Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 94 4. gr. Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga. □ 1 Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grund- vallar eftirfarandi forsendur: A. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir, skv. 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. janúar 2020. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig: 1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2020, skal gefa tvo punkta. 2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 að telja til fiskveiðiársins 2020/2021, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2020, skal gefa tvo punkta 3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020, sem hlutfall af heildar- botnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2020, skal gefa fjóra punkta. Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildistonn og að hámarki 300 þorskígildistonn. Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2019/2020. B. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags, skv. 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar: Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu 2010/2011, 2011/2012, 2012/2013, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018 eða 2018/2019 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 140 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildistonn í þess hlut. C. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu, 2010/2011, 2011/2012, 2012/2013, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018 eða 2018/2019 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 140 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildistonn í þess hlut. D. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A- lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C- liða.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==