Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða 17 [VIII. …] 1) 1) L. 88/2020, 6. gr. [IX. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 70/2011, 8. gr. [X. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 70/2011, 8. gr. [XI. … 1) ] 2) 1) L. 48/2014, 8. gr. 2) L. 164/2011, 37. gr. [XII…] 1) 1) L. 88/2020, 6. gr. [XIII. ….] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr. [XIV. ….] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr. [XV. ….] 1) 1) L. 72/2016, 5. gr. [XVI. …] 1) 1) L. 88/2020, 6. gr. [XVII. □ 1 Ráðherra er heimilt að mæla fyrir um að starfræksla stöðva til móttöku á þangi frá Breiðafirði sé háð leyfi skv. 15. gr. c enda liggi fyrir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um töku þangs í firðinum. □ 2 Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum skal njóta forgangs umfram aðra umsækjendur við fyrstu útgáfu leyfa skv. 15. gr. c sem nemur allt að 20.000 tonnum alls. Óheimilt er að framlengja eða framselja heimildir veittar samkvæmt ákvæði þessu.] 1) 1) L. 49/2017, 7. gr. b. [XVIII. □ 1 Í samræmi við 3.–6. mgr. 3. gr. skal gera rannsóknar- og vöktunaráætlun fyrir lífríki Breiðafjarðar í tengslum við nýtingu sjávargróðurs til a.m.k. þriggja ára. Vakta skal áhrif nýtingar sjávargróðurs til frambúðar ef af henni verður. Í rannsóknar- og vöktunaráætlun skal leitast við að svara sem flestu um áhrif nýtingar sjávargróðurs á lífríki Breiðafjarðar en vistgerðir þangs og þara eru búsvæði fjölda tegunda sem eru mikilvægar jafnt fyrir vistkerfi fjarðarins í heild sem einstaka nytjastofna. Framkvæmd rannsóknar- og vöktunaráætlunar er ætlað að tryggja vistfræðilega nálgun við ákvarðanatöku og mat á vernd og sjálfbærri nýtingu sjávargróðurs í Breiðafirði. □ 2 Að þremur árum liðnum skal ráðherra hefja undirbúning að frumvarpi um sjálfbæra nýtingu sjávargróðurs í Breiðafirði sem taki mið af niðurstöðum rannsókna. Frumvarpið verði lagt fram á Alþingi eigi síðar en fimm árum eftir gildistöku þessa ákvæðis. Kostnaður við rannsóknir og vöktun samkvæmt ákvæði þessu greiðist úr ríkissjóði. □ 3 Úthluti ráðherra leyfum til nýtingar sjávargróðurs í Breiðafirði áður en rannsóknar- og vöktunaráætlun liggur fyrir og tillögur um sjálfbæra nýtingu hafa verið samþykktar skal það aðeins gert til fimm ára í senn og að viðhöfðum ýtrustu varúðarsjónarmiðum.] 1) 1) L. 49/2017, 7. gr. c.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==