Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar 19 Lög um umgengni um nytjastofna sjávar. I. KAFLI. Almenn ákvæði. 1. gr. □ 1 Markmið laga þessara er að bæta umgengni um nytjastofna sjávar og stuðla að því að þeir verði nýttir með sjálfbærum hætti er tryggi til langs tíma hámarksafrakstur fyrir íslensku þjóðina. II. KAFLI. Veiðar. 2. gr. □ 1 [Veiðum skal hagað þannig að afli skemmist ekki í veiðarfærum. Ráðherra er heimilt í reglugerð að kveða nánar á um notkun einstakra veiðarfæra. □ 2 Skylt er að hirða og landa öllum afla sem kemur í veiðarfæri fiskiskipa. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að sleppa skuli lifandi afla sem er undir tiltekinni lengd eða þyngd eða fæst í ákveðin veiðarfæri. Þá getur ráðherra með reglugerð 1) ákveðið að heimilt sé að varpa fyrir borð verðlausum fiski og innyflum, hausum og öðru því sem til fellur við verkun eða vinnslu um borð í veiðiskipum. □ 3 Komi afli í veiðarfæri fiskiskips sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt og ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar er ráðherra heimilt að ákveða að hann reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þeim afla skal haldið aðgreindum frá öðrum afla skipsins, hann veginn og skráður sérstaklega. Ráðherra setur frekari reglur um framkvæmd þessarar málsgreinar, þar á meðal um leyfilega nýtingu þessa afla.] 2) 1) Rg. 468/2013, sbr. 237/2019. 2) L. 13/2002, 1. gr. 3. gr. □ 1 Fiskistofa skal fylgjast með aflasamsetningu fiskiskipaflotans þannig að jafnan liggi fyrir sem gleggstar upplýsingar um aflasamsetningu skipa eftir stærð og gerð skips, gerð og búnaði veiðarfæra, veiðislóð og veiðitíma. Skal Fiskistofa taka saman og birta árlega yfirlit yfir aflasamsetningu fiskiskipaflotans á liðnu fiskveiðiári. □ 2 Óheimilt er að hefja veiðiferð skips sem leyfi hefur til veiða í atvinnuskyni nema skipið hafi aflaheimildir sem telja má líklegt að dugi fyrir afla í ferðinni með hliðsjón af þeim veiðarfærum sem notuð eru. 4. gr. □ 1 Net og önnur veiðarfæri, sem skilin eru eftir í sjó, skulu dregin með eðlilegum og reglubundnum hætti eftir því sem aðstæður leyfa. □ 2 Fiskistofu er heimilt að taka eða láta taka upp veiðarfæri sem ekki hefur verið vitjað með eðlilegum hætti. Sama á við um veiðarfæri sem liggja í sjó eftir að veiðitímabili lýkur, svo og veiðarfæri sem eru ólögleg eða eru á svæðum þar sem notkun þeirra er óheimil. □ 3 Fiskistofa skal krefja eigendur veiðarfæra, sem dregin eru úr sjó samkvæmt heimild í 2. mgr., um kostnað sem af því hlýst. Verði ekki upplýst hver er eigandi veiðarfæra er Fiskistofu heimilt að selja veiðarfærin og rennur andvirði þeirra að frádregnum kostnaði til [Hafrannsóknastofnunar]. 1) 1) L. 157/2012, 7. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==