Stjórn fiskveiða 2020-2021
Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 24 17. gr. □ 1 [Fiskistofa skal afturkalla leyfi aðila til vigtunar sjávarafla skv. 2. mgr. 6. gr. ef hann, fyrirsvarsmenn hans, starfsmenn eða aðrir þeir sem í þágu hans starfa hafa brotið gegn ákvæðum III. kafla laga þessara eða reglum settum samkvæmt þeim. □ 2 Hafi vigtunarleyfi aðila verið afturkallað skv. 1. mgr. skal ekki veita honum slíkt leyfi að nýju fyrr en átta vikur eru liðnar frá afturköllun leyfis. Hafi ítrekað komið til afturköllunar á vigtunarleyfi aðila skal honum ekki veitt slíkt leyfi að nýju fyrr en sextán vikur eru liðnar frá því að leyfi var síðast afturkallað. □ 3 Við fyrsta minni háttar brot skal Fiskistofa, þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr., veita hlutaðeigandi aðila skriflega áminningu. □ 4 Brjóti aðili sem hefur vigtunarleyfi eða þeir sem í þágu hans starfa gegn ákvæðum III. kafla laga þessara eða reglum settum samkvæmt þeim þannig að bersýnilega leiði til þess að afli verði ranglega skráður skal Fiskistofa afturkalla vigtunarleyfi hlutaðeigandi aðila. Hafi vigtunarleyfi aðila verið afturkallað samkvæmt þessari málsgrein skal honum ekki veitt slíkt leyfi að nýju fyrr en 26 vikur eru liðnar frá afturköllun, enda geri aðili þá í umsókn um leyfi fullnægjandi grein fyrir hvernig hann hyggst tryggja að framkvæmd vigtunar verði í samræmi við lög og reglur. Heimavigtunarleyfi, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 6. gr., skal þó ekki veitt aðila fyrr en eitt ár er liðið frá afturköllun fyrra leyfis. □ 5 Hafi ítrekað komið til afturköllunar á vigtunarleyfi aðila skv. 4. mgr. skal ekki veita honum slíkt leyfi að nýju fyrr en tvö ár eru liðin frá því að leyfi var síðast afturkallað.] 1) □ 6 [Fiskistofa skal afturkalla leyfi erlends fiskmarkaðar til að móttaka afla íslenskra fiskiskipa sem ekki hefur verið endanlega veginn ef fyrirsvarsmenn fiskmarkaðar, starfsmenn eða aðrir þeir sem í þágu hans starfa hafa brotið gegn ákvæðum III. kafla eða reglum settum samkvæmt þeim. Hið sama á við standi erlendur fiskmarkaður ekki í skilum með greiðslu kostnaðar skv. 5. mgr. 5. gr.] 2) □ 7 [Ef ítrekað eru veruleg frávik á íshlutfalli í afla hjá skipum sem landa hjá vigtunarleyfishafa, sbr. 3. mgr. 13. gr., skal Fiskistofa afturkalla vigtunarleyfi hjá viðkomandi vigtunarleyfishafa í allt að eitt ár.] 3) 1) L. 163/2006, 3. gr. 2) L. 144/2008, 2. gr. 3) L. 48/2017, 2. gr. 18. gr. □ 1 Ákvörðunum Fiskistofu samkvæmt þessum kafla verður skotið til [ráðuneytisins], enda sé það gert innan eins mánaðar frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun. Kæra samkvæmt þessari grein frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar. 1) L. 126/2011, 222. gr. 19. gr. □ 1 [Áminningar, sviptingar veiðileyfa og afturkallanir vigtunarleyfa, sem ákveðnar eru skv. 15. og 17. gr. laga þessara eða 24. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, skulu hafa ítrekunaráhrif í tvö ár.] 1) 1) L. 163/2006, 4. gr. 20. gr. □ 1 Ákvarðanir stjórnvalda samkvæmt þessum kafla má bera undir dómstóla. Slíkt málskot frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar. 21. gr. □ 1 Fiskistofa skal reglulega birta opinberlega upplýsingar um sviptingu veiðiheimilda samkvæmt þessum kafla. Skal þar tilgreina heiti skips, skipaskrárnúmer, útgerð skips, tilefni
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==