Stjórn fiskveiða 2020-2021
Lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands 27 Lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. 1. gr. □ 1 Tilgangur laga þessara er að stuðla að viðgangi og hagkvæmri nýtingu nytjastofna innan íslenskrar fiskveiðilandhelgi og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. 2. gr. □ 1 Til nytjastofna samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi og sérlög gilda ekki um. □ 2 Til fiskveiðilandhelgi Íslands telst hafsvæðið frá fjöruborði að ytri mörkum efnahagslögsögu Íslands eins og hún er skilgreind í lögum nr. 41 1. júní 1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn. 3. gr. □ 1 Erlendum skipum eru bannaðar allar veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með ákvæði þessu eru ekki skert þau réttindi sem veitt hafa verið eða kunna að verða veitt öðrum ríkjum samkvæmt milliríkjasamningum. 4. gr. □ 1 Aðeins þeim íslensku skipum, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands samkvæmt ákvæðum laga nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, 1) með síðari breytingum, er heimilt að stunda veiðar í fiskveiðilandhelginni. 1) L. 38/1990 endurútgefin, sbr. 4. gr. l. 42/2006, sem l. 116/2006. 5. gr. □ 1 Íslenskum skipum eru bannaðar veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi Íslands nema á þeim veiðisvæðum og veiðitímum sem tilgreind eru í þessari grein, enda undanþiggi ráðherra ekki tiltekin svæði slíkum veiðum. Þegar rætt er um viðmiðunarlínu er átt við línu sem dregin er umhverfis landið á milli eftirtalinna staða: [1. 66°27'18,73''N – 22°24'10,19''V Horn (grp. 1) 2. 66°07'27,12''N – 21°30'58,14''V Selsker (viti) 3. 66°08'04,64''N – 20°10'48,81''V Ásbúðarrif (grp. 2) 4. 66°12'04,58''N – 18°51'30,00''V Siglunes (grp. 3) 5. 66°10'20,57''N – 17°51'14,76''V Flatey (Skjálfanda) (grp. 4) 6. 66°17'59,33''N – 17°07'02,92''V Mánáreyjar (Lágey) (grp. 5) 7. 66°30'37,67''N – 16°32'38,58''V Rauðinúpur (grp. 6) 8. 66°32'26,03''N – 16°11'47,30''V Rifstangi (grp. 7) 9. 66°32'16,91''N – 16°01'52,45''V Hraunhafnartangi (grp. 8) 10. 66°22'42,72''N – 14°31'47,69''V Langanes (grp. 11) 11. 65°59'54,92"N – 14°37'23,07"V Skálatóarsker 12. 65°33'09,98"N – 13°40'21,09"V Almenningsfles 13. 65°30'39,80''N – 13°36'16,23''V Glettinganes (grp. 12) 14. 65°09'58,45''N – 13°30'37,83''V Norðfjarðarhorn (grp. 13) 15. 65°04'37,50''N – 13°29'34,21''V Gerpir (grp. 14) 16. 64°58'54,90''N – 13°30'46,40''V Hólmur (Seley) (grp. 15) 17. 64°54'04,80''N – 13°36'51,98''V Skrúður (Þursi) (grp. 17)
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==