Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands 29 □ 4 [Samgöngustofa] 5) skal halda skrá yfir aflvísa þeirra skipa sem stunda veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót og skal sú skrá lögð til grundvallar við ákvörðun veiðiheimilda samkvæmt þessari grein. □ 5 Þar sem í lögum þessum er rætt um lengd skipa er miðað við mestu lengd þeirra samkvæmt mælingum [Samgöngustofa]. 5) □ 6 Botnvarpa og flotvarpa samkvæmt þessari grein merkir fiskivörpur sem notaðar eru til veiða á helstu botnfisktegundum hér við land og tekur ekki til varpna sem notaðar eru til veiða á humri, rækju eða uppsjávarfiskum. Setja skal nánari ákvæði í reglugerð um gerð og útbúnað fiskivarpna og dragnótar. □ 7 Stundi tvö eða fleiri skip veiðar með sömu botnvörpu, flotvörpu eða dragnót skulu heimildir þeirra samkvæmt þessari grein miðast við samanlagða lengd þeirra og samanlagða aflvísa þeirra. □ 8 Hér á eftir eru tilgreind þau svæði og tímar þar sem einstökum flokkum fiskiskipa, sbr. 2. mgr. þessarar greinar, er heimilt að stunda veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót: A. Norðurland. Allir flokkar: A.1. Allt árið frá línu réttvísandi norður frá Horni (vms. 1) að línu réttvísandi norðaustur frá Langanesi (vms. 10), utan línu sem dregin er 12 sjómílur utan við viðmiðunarlínu. A.2. Allt árið utan línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki Grímseyjar. A.3. Allt árið utan línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki Kolbeinseyjar (67°08'80 N – 18°40'60 V). B. Austurland. Allir flokkar: B.1. Allt árið frá línu réttvísandi norðaustur frá Langanesi (vms. 10) að línu réttvísandi austur frá Hvítingum (vms. 19), utan línu sem dregin er 12 sjómílur utan viðmiðunarlínu. B.2. Allt árið utan línu sem dregin er í 5 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki Hvalbaks (64°35'80 N – 13°16'60 V). Flokkar 2 og 3: B.3. Allt árið utan línu sem dregin er 6 sjómílur utan viðmiðunarlínu milli lína réttvísandi norðaustur frá Langanesi (vms. 10) og réttvísandi austur frá Glettinganesi (vms. 13). C. Suðausturland. Allir flokkar: C.1. Allt árið frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (vms. 19) að línu réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28), utan línu sem dregin er 12 sjómílur utan viðmiðunarlínu. C.2. Tímabilið 1. maí – 31. desember frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (vms. 19) að línu réttvísandi suður frá Hvalnesi (64°24'10 N – 14°32'50 V), utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu. C.3. Tímabilið 1. maí – 31. janúar á svæði milli lína réttvísandi austur frá Hvítingum (vms. 19) og réttvísandi suður frá Ingólfshöfða (vms. 22), utan línu sem dregin er 9 sjómílur utan viðmiðunarlínu. C.4. Tímabilið 15. september – 31. janúar á svæði milli lína réttvísandi suður frá Ingólfshöfða (vms. 22) og réttvísandi suður frá Lundadrangi (vms. 28), utan línu sem dregin er 4 sjómílur utan viðmiðunarlínu. Flokkar 2 og 3: C.5. Allt árið utan línu sem dregin er í 4 sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins frá línu austur frá Hvítingum (vms. 19) að 18°00'00 V.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==