Stjórn fiskveiða 2020-2021

Lög nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands 37 Lög um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. I. KAFLI. Fiskveiðar íslenskra skipa. 1. gr. □ 1 Ákvæði þessa kafla taka til veiða íslenskra skipa úr nytjastofnum utan lögsögu Íslands, sbr. lög um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn. Til veiða samkvæmt lögum þessum telst hvers konar nýting nytjastofna. Til nytjastofna í þessu sambandi teljast sjávardýr og sjávargróður sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð. 2. gr. □ 1 Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. 3. gr. □ 1 Ráðherra getur sett reglur um veiðar íslenskra skipa utan lögsögu sem nauðsynlegar eru til að fullnægja almennum skyldum Íslands til verndunar lifandi auðlindum hafsins eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum. 4. gr. □ 1 Öllum íslenskum skipum eru heimilar veiðar utan lögsögu Íslands með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum og reglum settum með stoð í þeim. □ 2 Ráðherra skal með reglugerð binda veiðar íslenskra skipa á úthafinu sérstökum leyfum sé það nauðsynlegt vegna alþjóðlegra samningsskuldbindinga Íslands, til þess að fullnægja almennum ákvörðunum sem teknar eru með stoð í 3. gr., eða til að vernda hagsmuni Íslands að því er varðar fiskstofna sem um ræðir í 5. gr., og eru veiðar í þessum tilvikum óheimilar án slíkra leyfa. Skulu leyfin bundin þeim skilyrðum sem nauðsynleg eru. Því aðeins er heimilt að veita skipum leyfi samkvæmt þessari grein að eigendur þeirra og útgerðir fullnægi þeim skilyrðum til að stunda veiðar í efnahagslögsögu Íslands sem kveðið er á um í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri og í lögum um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands. □ 3 Ákvæði 2. mgr. gilda einnig um veiðar íslenskra skipa í lögsögu annarra ríkja úr þeim stofnum sem um ræðir í 5. gr. □ 4 Fiskveiðar íslenskra skipa innan lögsögu annarra ríkja eru ekki heimilar nema með leyfi þar til bærra yfirvalda. □ 5 Ráðherra getur sett sérstakar reglur um stjórn veiða íslenskra skipa í þeim tilvikum sem Ísland hefur nýtt rétt sinn til að mótmæla samþykktum um fiskveiðistjórn sem gerðar hafa verið á grundvelli samnings sem Ísland er aðili að, enda þótt ákvæði 1. málsl. 2. mgr. eigi ekki við. Getur hann í því skyni bundið veiðarnar sérstökum leyfum og eru þær þá óheimilar án slíkra leyfa. Binda má leyfin nauðsynlegum skilyrðum. Ákvæði 5. og 6. gr. gilda í þessum tilvikum eftir því sem við getur átt. 5. gr. □ 1 Um veiðar utan lögsögu Íslands úr stofnum, sem veiðast bæði innan og utan hennar, íslenskum deilistofnum, skulu gilda ákvæði laga um stjórn fiskveiða eftir því sem við getur átt, sbr. þó ákvæði þessarar greinar.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==