Stjórn fiskveiða 2020-2021

Stjórn fiskveiða 2020/2021 – Lög og reglugerðir 46 10. gr. □ 1 Ákvæði 11.–15. gr. eiga við sé brotið gegn lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim nema þyngri refsing liggi við brotinu samkvæmt öðrum lögum eða reglugerðum settum með stoð í þeim. 11. gr. □ 1 Brot gegn ákvæðum laga þessara og reglum settum samkvæmt þeim varða sektum, hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. Sé um stórfellt eða ítrekað ásetningsbrot að ræða gilda ekki sektarhámörk þau sem sett eru í 12. gr. Auk þess skal heimilt í þeim tilvikum að gera allan afla skipsins og öll veiðarfæri um borð í skipinu upptæk. Í stað þess að gera afla og veiðarfæri upptæk samkvæmt þessari grein er heimilt að gera upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis aflans og veiðarfæranna samkvæmt mati dómkvaddra manna. 12. gr. □ 1 Brot gegn ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt þeim eða ákvæðum leyfisbréfa varða sektum sem eigi skulu nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 4.000.000 kr., eftir eðli og umfangi brots. 13. gr. □ 1 Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Ákvarða má sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmann lögaðila, starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn, starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa hafa gerst sekir um brot. □ 2 Tilraun til eða hlutdeild í brotum á lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum. 14. gr. □ 1 Hafi afli fengist á ólögmætan hátt skulu brot auk refsingar samkvæmt framansögðu varða upptöku afla. Komi í ljós við athugun á afla um borð í erlendu veiðiskipi að aflamagn um borð í skipinu er ekki í samræmi við skráðan afla í afladagbókum eða tilkynningar til stjórnvalda er heimilt að gera það aflamagn sem umfram er hinn skráða eða uppgefna afla upptækt. Á sama hátt skal gera þann afla upptækan sem umfram er þær heimildir sem erlendum skipum eru veittar af íslenskum stjórnvöldum. Í stað þess að gera afla upptækan samkvæmt þessari grein er heimilt að gera upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis aflans samkvæmt mati dómkvaddra matsmanna. □ 2 Ólögleg veiðarfæri skulu gerð upptæk. Ólögleg eru þau veiðarfæri eða hluti veiðarfæra sem ekki eru í samræmi við þær reglur sem settar eru um veiðarfæri með stoð í lögum þessum eða í samræmi við ákvæði annarra laga sem vísað er til í lögum þessum. 15. gr. □ 1 Heimilt er að kyrrsetja skip sem fært er til hafnar vegna brota á lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim. Sé slíkt gert er dómara heimilt að láta það laust ef sett er bankatrygging eða önnur jafngild trygging, að hans mati, fyrir greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku. □ 2 Til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku skal vera lögveð í skipinu. □ 3 […] 1) □ 4 Sektarfé samkvæmt lögum þessum skal renna í Landhelgissjóð Íslands. 1) L. 88/2008, 233. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==