Stjórn fiskveiða 2020-2021

Reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021 59 III. KAFLI Skiptimarkaður með aflamark. 4. gr. □ 1 Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta, sbr. 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark. □ 2 Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn aflamarks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: Þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Fiskistofa hefur heimild til að binda tilboð við tiltekna tegund til að ná markmiðum 2. ml. 1. mgr. 4. gr. þessarar reglugerðar. Fiskistofa skal auglýsa eftir tilboðum eigi síðar en 10. hvers mánaðar, frá og með 10. október til og með 10. júlí. Ákveði ráðherra aflamark til úthlutunar á öðrum tíma en 1. september, getur Fiskistofa auglýst eftir tilboðum á öðrum tíma. Tilboð skulu berast Fiskistofu fyrir kl. 16.00 sjö dögum frá birtingu auglýsingar á heimasíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu Fiskistofu. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð. □ 3 Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður. □ 4 Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað. Fiskistofa skal hafna tilboðum í tegund þegar þorskígildi uppboðstegundar Fiskistofu er lægra en 50% þorskígildis skiptitegundar (þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa). □ 5 Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði. □ 6 Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. IV. KAFLI Skipting leyfilegs afla. 5. gr. □ 1 Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==