Suzuki ACROSS

Efldu andann og dragðu úr losun og eldsneytisnotkun. Upplifðu þýða og tafarlausa viðbragðið og hljóðlátu vinnsluna frá hátæknivæddri og umhverfisvænni tengiltvinnaflrás. Rafgeymir með mikilli orkurýmd og 2,5 lítra vélin stuðla að akstursánægju til langframa. Tengiltvinnaflrás Aflmikill rafmótorinn skilar þýðri, hljóðlátri og togmikilli vinnslu sem tryggir þægilegan akstur í dagsins önn. Við akstur á meiri hraða skilar bensínvélin viðbótarafli og líka þegar þörf er fyrir meiri hröðun. Hún sér líka til þess að allir komist á áfangastað í lengri ferðum. Rafgeymirinn er hlaðinn með einföldum hætti heima við eða á hleðslustöð. 2,5 lítra vél Slagrými bensínvélarinnar er 2,5 lítrar. Hún hleður rafgeyminn og skilar viðbótarafli í hröðum akstri. Hún skiptir milli innsprautunar um soggöng (PFI) og beinnar strokkinnsprautunar (DI) eftir akstursaðstæðum hverju sinni. Þannig næst hámarks skilvirkni í bruna sem dregur úr eldsneytisnotkun og losun. 8

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==