VR-BLAÐIÐ I 04 2019

VR blaðið 04 2019 – blaðsíða 4 SKRÁNING VINNUTÍMA Þegar mikið er að gera er góð vinnuregla að skrá niður vinnutíma sinn. Í mörgum tilvikum er um talsverða aukavinnu að ræða og mikilvægt að halda vel utan um tímaskráningu svo komast megi hjá misskilningi og mistökum við útreikning launa. Þar sem flestar verslanir ráða tímabundið til sín skólafólk yfir háannatímann er einnig mikilvægt að hnykkja á þessu atriði við nýtt samstarfsfólk. Tímaskráningar- appið Klukk frá ASÍ er hentugt að hafa í símanum en hægt er að sækja appið í App store fyrir Iphone og Play store fyrir Android síma. FRÍDAGAR YFIR HÁTÍÐARNAR Ekki er vinnuskylda á eftirfarandi dögum og skulu launamenn halda sínum dagvinnulaunum óskertum: Eftir kl. 12.00 á aðfangadag (stórhátíðardagur). Jóladagur (stórhátíðardagur). Annar í jólum (almennur frídagur). Eftir kl. 12.00 á gamlársdag (stórhátíðardagur). Nú er mesta vinnutörn ársins að hefjast hjá verslunarfólki. Við viljum því minna á ýmis atriði sem lúta að réttindum og skyldum starfsmanna. RÉTTINDI ÞÍN Í DESEMBER DESEMBERUPPBÓT Desemberuppbót til félagsmanna VR skal greiðast eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbót fyrir fullt starf á árinu 2019 er 92.000 kr. Sjá reiknivél fyrir desemberuppbót á vr.is . Nýársdagur (stórhátíðardagur). Auk þess má minna á að fyrsta vinnudag eftir jól skal dagvinna í verslunum hefjast kl. 10.00 . LAUN Á FRÍDÖGUM Samþykki launamenn að taka að sér vinnu á frí- dögum skal greiða eftirvinnukaup fyrir alla tíma utan skilgreindrar dagvinnu upp að 171,15 klst. í verslun eða 162,5 klst. í skrifstofustarfi, eða yfir- vinnukaup fyrir vinnu á almennum frídögum og stórhátíðarkaup fyrir vinnu á stórhátíðardögum. Kaupið reiknast þannig: Eftirvinnukaup: 0,8235% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu í verslun. Næturvinnukaup: 0,8824% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu í verslun. Eftirvinnukaup: 0,875% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu. Næturvinnukaup: 0,9375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu. Yfirvinnukaup: 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu og í verslun. Stórhátíðarkaup: 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á skrifstofu og í verslun. Hefðbundin dagvinnulaun launamanns í föstu og reglubundnu starfi haldast auk þess óbreytt. Ef launamaður er ráðinn inn í verslun yfir jólin tíma-

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==