Kjarasamningur milli Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins
12 Fyrrnefndar hækkanir á kauptaxta eru reiknaðar í útgefnum töxtum í gr. 1.1. og í fylgiskjali bls. 86. Kjaratengdir liðir Kjaratengdir liðir kjarasamninga hækka um 2,5% á sömu dagsetningum, nema um annað hafi verið samið. Launa- og forsendunefnd Sérstök launa- og forsendunefnd skal þegar taka til starfa. Nefndin skal skipuð þremur fulltrúum tilnefndum af SA og þremur fulltrúum tilnefndum sameiginlega af samninga- nefndum þeirra félaga sem aðild eiga að kjarasamningum, dags. 3. apríl 2019. Verkefni nefndarinnar er að leggja mat á forsendur kjarasamninganna og ákvæði samninganna um hagvaxtarauka og taxtaauka. Hagvaxtarauki Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmdar launaauki á grundvelli þróunar vergrar landsframleiðslu á hvern íbúa. Útreikningur launaaukans byggir á bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um vísitölu vergrar landsframleiðslu á mann sem birtast í byrjun mars ár hvert fyrir næstliðið ár. Launaaukinn bætist bæði við mánaðarlaunataxta kjarasamninga og föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu. Neðangreind tafla sýnir fjárhæð launaaukans og forsendur hans. Við ákvörðun launaauka vegna áranna 2019-2022, sem koma til framkvæmdar árin 2020-2023, skal taka tillit til uppfærðra bráðabirgðatalna fyrir þau ár sem lögð hafa verið til grundvallar við útreikning launaaukans. Launaaukinn greiðist 1. maí. Launa- og forsendunefnd aðila ákvarðar fjárhæð launaaukans verði tilefni til greiðslu hans. Verg landsframleiðsla á hvern íbúa, hækkun milli ára 1,0–1,50% 1,51–2,00% 2,01–2,50% 2,51–3,00% > 3,0 Launaauki á föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu 2.250 kr. 4.125 kr. 6.000 kr. 7.875 kr. 9.750 kr. Launaauki á mánaðarlaunataxta kjarasamninga 3.000 kr. 5.500 kr. 8.000 kr. 10.500 kr. 13.000 kr.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==