Kjarasamningur milli Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins

20 1.11. Ráðningarsamningar og ráðningarbréf 1.11.1. Gerð ráðningarsamninga Sé starfsmaður ráðinn til lengri tíma en eins mánaðar og að meðaltali lengur en 8 klst. á viku, skal eigi síðar en tveim mánuðum eftir að starf hefst gerður skriflegur ráðningar- samningur eða ráðning staðfest skriflega. Láti starfsmaður af störfum áður en tveggja mánaða frestinum lýkur, án þess að skriflegur ráðningarsamningur hafi verið gerður eða ráðning staðfest skriflega, skal slík staðfesting látin í té við starfslok. Brjóti atvinnurekandi gegn ákvæðum þessarar greinar getur það varðað hann skaðabótum. 1.11.2. Breytingar Breytingar á ráðningarkjörum umfram það sem leiðir af lögum eða kjarasamningum skal stað- festa með sama hætti (sbr. 1.11.1.) eigi síðar en mánuði eftir að þær koma til framkvæmda. 1.11.3. Tilfallandi störf Ákvæði gr. 1.11.1. og 1.11.2. gilda ekki við ráðningu í tilfallandi störf, að því tilskildu að hlut- lægar ástæður liggi því til grundvallar. 1.11.4. Upplýsingaskylda vinnuveitanda Í ráðningarsamningi eða skriflegri staðfestingu ráðningar, þ.e. ráðningarbréfi, skal a.m.k. eftirfarandi koma fram: 1. Deili á aðilum, þ.m.t. kennitölur. 2. Vinnustaður og heimilisfang vinnuveitanda. Sé ekki um fastan vinnustað að ræða, eða stað þar sem vinnan fer jafnaðarlega fram, skal koma fram að starfsmaður sé ráðinn á mismunandi vinnustöðum. 3. Titill, staða, eðli eða tegund starfs sem starfsmaður er ráðinn í eða stutt útlistun eða lýsing á starfinu. 4. Fyrsti starfsdagur. 5. Lengd ráðningar sé hún tímabundin. 6. Orlofsréttur. 7. Uppsagnarfrestur af hálfu vinnuveitanda og starfsmanns. 8. Mánaðar- eða vikulaun, t.d. með tilvísun til launataxta, mánaðarlaun sem yfirvinna er reiknuð af, aðrar greiðslur eða hlunnindi svo og greiðslutímabil. 9. Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku, vikulegan vinnutíma eða starfshlutfall. 10. Lífeyrissjóður. 11. Tilvísun til gildandi kjarasamnings og hlutaðeigandi stéttarfélags. Upplýsingar skv. 6.-9. tl. má gefa með tilvísun til kjarasamninga.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==