Kjarasamningur milli Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins

29 3. MATAR- OG KAFFITÍMAR, FÆÐIS- OG FLUTNINGSKOSTNAÐUR 3.1. Matar- og kaffitímar í dagvinnu 3.1.1. Matartímar Matartími á dagvinnutímabilinu skal vera ½ - 1 klst. á tímabilinu kl. 12:00 - 14:00 og telst hann eigi til venjulegs vinnutíma. Réttur til hádegisverðarhlés miðast við a.m.k. 5 klst. vinnu á dagvinnutímabilinu. 3.1.2. Kaffitímar Hjá afgreiðslufólki skal kaffitími vera 35 mín. á dag miðað við dagvinnu. Hjá skrifstofufólki skal kaffitími vera 15 mín. á dag miðað við dagvinnutíma. Fólk sem vinnur hluta úr degi skal fá hlutfallslegan kaffitíma. Fella má niður eða stytta kaffitíma með samkomulagi á vinnustað og styttist vinnutími sem því nemur. 3.2. Matar- og kaffitímar utan dagvinnutímabils 3.2.1. Kvöldmatartími Veita skal kvöldmatartíma á tímabilinu kl. 19:00–20:00 og greiðist hann með eftir-/yfirvinnu- kaupi eftir því sem við á. Sé matartíminn unninn eða hluti af honum greiðist tilsvarandi lengri yfirvinna. Dæmi 1: Unnið er til kl. 19:10. Greiddar eru 10 mínútur á eftir-/yfirvinnukaupi eftir atvikum vegna vinnu- tíma til kl. 19:10. Einnig eru greiddar aukalega 10 mínútur í yfirvinnu vegna unnins matartíma. Dæmi 2: Unnið er til kl. 21:00. Starfsmaður fær 40 mínútur í matartíma. Vinnutíminn milli kl. 19:00–20:00 greiðist á eftirvinnukaupi til hlutastarfsmanna en yfirvinnukaupi til starfsmanna í fullu starfi. Einnig eru greiddar 20 mínútur á yfirvinnukaupi vegna unnins matartíma. 3.2.2. Vinna hefst kl. 16:00 og síðar Starfsmenn í verslunum sem mæta til vinnu kl. 16:00 eða síðar skulu fá greiddar 5 mínútur fyrir hverja unna klst., þó að lágmarki 15 mínútur vegna neysluhléa sem ekki eru tekin. Vinni starfsmaður 4½ klst. eða lengur á hann hins vegar rétt á óskertu 1 klst. matarhléi. 3.2.3. Aðrir matar- og kaffitímar Sé unnið utan dagvinnutímabils skal matartími vera frá kl. 3:00–4:00 og kaffitímar frá kl. 22:00–22:20 og kl. 6:15–6:30.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==