Kjarasamningur milli VR og Samtaka atvinnulífsins

30 Á Þorláksmessu er þó heimilt að veita 20 mínútna kaffitíma á tímabilinu frá kl. 21:40-22:20. Ofangreindir matar- og kaffitímar teljast til vinnutíma og sé unnið í þeim greiðist tilsvarandi lengri yfirvinna. 3.2.4. Matar- og kaffitímar á laugardögum, sunnudögum og frídögum Með matar- og kaffitíma á laugardögum, sunnudögum og á frídögum, sbr. gr. 2.3., skal fara eftir sömu reglu og um virka daga. 3.3. Um vinnu í matar- og kaffitímum Sé unnið í matar- eða kaffitímum á dagvinnutímabili eða hluta af þeim skal greiða þá með eftir-/yfirvinnukaupi eftir því sem við á. 3.4. Ferðir til og frá vinnustað Ferðir til og frá vinnustað á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær og Seltjarnarnes), á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki, greiðast af vinnuveitanda. 3.5. Vinna utan samningssvæðis 3.5.1. Fæðis- og flutningskostnaður Sé vinna innt af hendi utan samningssvæðis skal vinnuveitandi sjá starfsmanni fyrir ókeypis fæði, húsnæði svo og ferðum fram og til baka. 3.5.2. Hvíld vegna ferðalaga á vegum vinnuveitanda Ef ekki er um annað samið eða venja hjá viðkomandi starfsmanni eiga starfsmenn sem þurfa að ferðast á vegum vinnuveitanda fram á kvöld eða yfir nótt rétt á að lágmarki 11 klst. hvíld, sbr. gr. 2.4.1. 3.5.3. Kostnaður á ferðum sölumanna Vinnuveitandi skal ávallt greiða allan uppihaldskostnað svo og ferðakostnað í söluferðum skv. reikningi. Vegna lengri vinnutíma í söluferðum skal greiða sölumanni 43% álag á mánaðarlaun standi söluferð 5 daga eða skemur en 65% álag standi söluferð lengur en 5 daga. Skal álag þetta greitt á mánaðarlaun í réttu hlutfalli við þann fjölda daga sem ferðast er utan 60 km. akstursleiðar frá aðalstöðvum fyrirtækisins ef ekki hefur verið um annað samið. Noti sölumenn eigin bifreið skal greitt fyrir hana skv. ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar ríkisins, þ.e. utanbæjar, en sé hún notuð innanbæjar skal semja um daggjald. - Sjá önnur ákvæði um sölumenn í gr. 1.5.3. (um námskeið) og gr. 2.1.2. (um vinnutíma).

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==