Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda
10 Launa- og forsendunefnd skal greina tilefni til greiðslu kauptaxtaauka á grundvelli launaþróunar. Nefndin skal bera saman launaþróun skv. launavísitölu Hagstofu Íslands fyrir almennan vinnumarkað (leiðréttri með aðferð skv. tillögu dr. Kims Ziechangs sem lýst er í skýrslu hans dags. 5. nóv. 2019) við hlutfallslega breytingu hæsta virka launaflokks SGS (lfl. 17 e. 5 ár). Viðmiðunartímabil samanburðarins er desembermánuðir ár hvert á samningstímanum, í fyrsta sinn tímabilið desember 2019 til desember 2020. Niðurstaða liggi fyrir í mars ár hvert. Verði niðurstaðan sú að framangreind launavísitala hafi hækkað meira en viðmiðunar- taxtinn á viðmiðunartímabilinu skal nefndin úrskurða um tiltekna krónutölu sem allir kauptaxtar kjarasamninga aðila hækki um. Krónutala þessi reiknast sem hlutfall umfram- hækkunarinnar af framangreindum kauptaxta. Kauptaxtaauki bætist við kauptaxta frá 1. maí. 1.3. Laun a. Vinnuveitandi og starfsmaður semja milliliðalaust sín á milli í hverju tilfelli fyrir sig um laun starfsmanns að öðru leyti en greinir í grein 1.2. b. Launin skulu endurspegla vinnuframlag starfsmanns, hæfni hans, dugnað, sveigjanleika í vinnu, vinnu á sérstökum tímum, innihald starfsins og ábyrgð og menntun ef við á. c. Við ákvörðun launa milli vinnuveitanda og starfsmanns skulu laun endurspegla vinnu- framlag, hæfni, menntun og færni viðkomandi starfsmanns svo og innihald starfsins og þá ábyrgð sem starfinu fylgir. Gæta skal ákvæða jafnréttislaga við launaákvarðanir. Séu laun á vinnustöðum þar sem vinnutími ákvarðast af afgreiðslutíma ákveðin sem heildarlaun fyrir heildarvinnuframlag skal koma fram áætlað vinnuframlag að baki heildarkjörum, fjöldi greiddra yfirvinnutíma að meðaltali í mánuði eða önnur samsetn- ing launa eftir því sem við á. Verði breytingar á vinnuframlagi eða starfi starfsmanns sem mögulega breyta forsendum ráðningarkjara skal endurskoða launin og samsetningu þeirra með tilliti til viðkomandi breytinga, telji annar hvor aðili vera tilefni til þess. Starfsmaður á rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári um störf sín og hugsanlega breytingu á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali skal það veitt innan tveggja mánaða og niðurstaða viðtalsins liggi fyrir innan mánaðar. Niðurstaða launaviðtals skal skráð og staðfest af báðum aðilum og skoðast það vera hluti ráðningarsamnings. - Sjá fylgiskjal frá 2011 vegna starfsmannaviðtala á bls. 65. d. Heimilt er með vinnustaðasamningi að innleiða launakerfi til þess að bæta samkeppnis- hæfni og þróun fyrirtækisins og auka tekjumöguleika starfsmannanna.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==