Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda
20 2.1.8. Dagvinnulok á aðfangadag og gamlársdag Aðfangadag jóla og gamlársdag skal dagvinnutíma lokið eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi, beri þá upp á mánudag til föstudags. 2.1.9. Ýmis vinnutímaákvæði Fyrsta vinnudag eftir jól skal dagvinna í verslunum hefjast kl. 10:00. Hver starfsmaður hefur rétt á að hafna yfirvinnu og óski starfsmaður ekki eftir að vinna yfirvinnu skal hann ekki gjalda þess á neinn hátt. 2.1.10. Framkvæmd vinnutímastyttingar Vinnutímastytting tekur gildi 1. janúar 2020. Atvinnurekendur skulu hafa samráð við launamenn um tillögu að útfærslu vinnutímastyttingar á grundvelli eftirfarandi valkosta: a) Hver dagur styttist um 9 mínútur b) Hver vika styttist um 45 mínútur c) Safnað upp innan ársins d) Vinnutímastyttingu með öðrum hætti Samkomulag skal hafa náðst um framkvæmd vinnutímastyttingar fyrir 1. desember 2019. Ef samkomulag næst ekki styttist vinnutími um 9 mínútur á dag miðað við fullt starf. Atvinnurekanda er heimilt vegna skipulags og nauðsynlegrar samræmingar á vinnustað að tilkynna starfsmanni með a.m.k. mánaðar fyrirvara um breytt fyrirkomulag vinnutíma- styttingar. 2.2. Yfirvinna og stórhátíðarvinna 2.2.1. Yfirvinna Yfirvinna telst hver sú vinna sem fer fram yfir hinn venjulega dagvinnutíma svo og á laugardögum og sunnudögum, enn fremur á öllum frídögum sem um getur í gr. 2.3.1. 2.2.2. Stórhátíðarvinna Stórhátíðarvinna telst vinna á stórhátíðardögum sbr. gr. 2.3.2. 2.2.3. Um vinnu á laugardögum og sunnudögum Þegar unnið er á laugardögum og sunnudögum greiðist aldrei minna en 4 tímar í yfirvinnu enda þótt unnið sé skemur. Á laugardögum og sunnudögum er miðað við að neysluhlé séu tekin eftir því sem aðstæður leyfa. Vegna breytilegs neyslutíma og sveigjanlegs vinnutíma í verslunum á laugardögum og sunnudögum skal þó aldrei greiða minna en sem svarar einni klst. lengur en nemur unnum tíma.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==