Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda

54 Bókun 2013 um starfsmenntamál Aðilar eru sammála um að ráðast í sameiginlega úttekt á núverandi fyrirkomulagi fræðslu- og starfsmenntamála með það að markmiði: 1. að auka vægi náms sem metið er til eininga eða viðurkenndrar færni á vinnumarkaði. 2. að stuðla að auknu samstarfi milli sjóða til hagræðis fyrir fyrirtæki og einstaklinga og koma á sameiginlegri vefgátt fyrir þá. 3. að ráðast í átak til að kynna sjóðina og þann ávinning sem þangað er að sækja. 4. að fjalla um með hvaða hætti ráðstafa megi hluta af þeirri hækkun sem samið er um í samningi þessum til þess að ná markmiðum í stafliðum b og c. Úttektinni skal lokið fyrir 1. maí 2014. Bókun 2013 um skriflega staðfestingu ráðningar Aðilar eru sammála um að nokkur misbrestur er á að gerðir séu skriflegir ráðningarsamningar eða ráðning staðfest skriflega í samræmi við ákvæði kjarasamninga um ráðningarsamninga og ráðningarbréf. Samningsaðilar munu á samningstímabilinu vinna að því að kynna skyldur atvinnurekenda og réttindi launamanna samkvæmt þessum ákvæðum. Aðilar munu fyrir árslok 2015 gera úttekt á framkvæmd ákvæðisins og virkni þess og endurskoða það í ljósi hennar. Nýju ákvæði um viðurlög er ætlað að mæta athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Telji ESA ákvæðið ekki fullnægjandi munu samningsaðilar þegar taka upp viðræður til að bregðast við. Bókun 2013 um 2. mgr. lokaákvæðis Aðilar munu á gildistíma samnings þessa taka til umræðu ákvæði 2. mgr. lokaákvæðis samnings þessa. Bókun 2013 um lokaákvæði Ákvæði þessa samnings verða hluti þeirra kjarasamninga sem undirritaðir eru 21. desember 2013 milli Samtaka atvinnulífsins og þeirra stéttarfélaga sem samninganefnd aðildarsamtaka ASÍ hefur umboð fyrir. Rísi ágreiningur með aðilum um texta einstakra ákvæða ræður texti þessa skjals. Öll ákvæði þessa samnings hafa gildi lágmarkskjarasamnings skv. ákvæðum 1. gr. laga 55/1980. Bókun vegna launahækkana frá 1. desember 2010 – 10. maí 2011 Í þeim tilfellum þar sem almenn launahækkun hefur orðið í fyrirtæki á tímabilinu 1. desember 2010 til 10. maí 2011 er heimilt að taka tillit til þeirrar launahækkunar til frádráttar þeirri hækkun launa sem koma á til framkvæmda 1. júní 2011. Það er skilyrði að fyrir liggi að það hafi verið sameiginlegur skilningur samningsaðila að kjarasamningsbundin hækkun kæmi ekki til viðbótar við samningsbundna hækkun. Laun skulu þó í heild ávallt hækka um það lágmark sem kjarasamningur aðila kveður á um. Bókun 2011 – Almenn launahækkun Með umsaminni almennri launahækkun í kjarasamningum aðildarsamtaka ASÍ og FA er átt við lágmarkshækkun þeirra reglulegu launa sem starfsmaður nýtur á þeim degi þegar hækkun skv. kjarasamningi á að koma til framkvæmda, óháð launum viðkomandi starfsmanns.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==