Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda
63 Samkomulag SA og ASÍ 2008 um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum 1. Inngangur Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa með vísan til laga nr. 151/2006 um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum komið sér saman um eftirfarandi reglur um fyrirkomulag upplýsingagjafar og samráðs innan fyrirtækja að því er varðar forsvar og útreikning á fjölda starfsmanna. 2. Útreikningur á fjölda starfsmanna Lög um upplýsingar og samráð gilda um fyrirtæki þar sem starfa að jafnaði a.m.k. 50 starfsmenn á innlendum vinnumarkaði. Við útreikning á fjölda starfsmanna skal miða við meðaltal starfmanna á liðnu almanaksári. Hafi meðalfjöldi starfsmanna verið undir 50 á liðnu almanaksári verður upplýsinga- og samráðsskyldan þó virk skv. samningi þess- um fari fjöldi starfsmanna m.v. meðaltal síðustu fjögurra mánaða yfir 70. Hafi meðalfjöldi starfsmanna verið 50 eða yfir á liðnu almanaksári fellur upplýsinga- og samráðsskyldan þó niður skv. samningi þessum fari fjöldi starfsmanna m.v. meðaltal síðustu fjögurra mánaða undir 40. Afleysingar vegna sumarfría, veikinda eða annarra fjarvista hafa ekki áhrif við útreikning á fjölda starfsmanna. 3. Samstarfsnefnd 3.1. Í fyrirtækjum sem falla undir samning þennan skal vera starfandi samstarfsnefnd fyrirtækis og starfsmanna. Er hún skipuð tveimur fulltrúum atvinnurekenda og tveimur fulltrúum starfsmanna. 3.2. Trúnaðarmenn innan fyrirtækis velja fulltrúa í samstarfsnefndir úr sínum hópi. Starfsmenn geta þó óskað þess að fulltrúar starfsmanna í samstarfsnefnd séu kosnir úr hópi starfsmanna enda leggi a.m.k. fimmtungur starfsmanna fram ósk þess efnis. Ef enginn trúnaðarmaður er í fyrirtæki kjósa starfsmenn fulltrúa sína í samstarfsnefnd úr sínum hópi. Ef einn trúnaðarmaður er í fyrirtæki kjósa starfsmenn annan fulltrúa í samstarfsnefnd úr sínum hópi. Kosningarétt hafa þeir starfsmenn sem trúnaðarmaður er ekki fulltrúi fyrir. Kjörtímabil er tvö ár frá tilkynningu um kosningu nema annað hafi verið ákveðið. Við kosningu trúnaðarmanna í samstarfsnefnd hefur hver trúnaðarmaður eitt atkvæði. Fari fram kosning meðal starfsmanna ber atvinnurekanda að leggja fram lista yfir starfs- menn og veita aðra þá aðstoð við gerð kjörgagna og kosningu sem þörf er á.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==