Kjarasamningur milli VR/LÍV og Félags atvinnurekanda
64 Með trúnaðarmönnum er átt við þá trúnaðarmenn sem starfa á grundvelli laga nr. 80/1938 og ákvæða kjarasamninga um trúnaðarmenn. Aðrir fulltrúar starfsmanna í samráðsnefnd njóta sömu verndar og trúnaðarmenn að því er varðar störf þeirra í samráðsnefnd. 3.3. Veiting upplýsinga samkvæmt lögum um upplýsingar og samráð skal fara fram á vett- vangi samstarfsnefndar nema samkomulag sé um aðra framkvæmd innan hennar. 3.4. Samráð við starfsmenn samkvæmt lögum um upplýsingar og samráð skal eiga sér stað á vettvangi samstarfsnefndarinnar nema samkomulag sé um aðra framkvæmd innan samstarfsnefndarinnar. 3.5. Samstarfsnefnd setur sér starfsreglur. 3.6. Fulltrúar atvinnurekanda bera ábyrgð á að kalla samstarfsnefndina saman en miða skal við að hún komi saman ekki sjaldnar en tvisvar á ári nema samkomulag verði um annað í nefndinni. 3.7. Upplýsinga- og samráðskylda fyrirtækisins verður virk þegar trúnaðarmenn, eða eftir atvikum starfsmenn, hafa kosið sér fulltrúa í samráðsnefnd samkvæmt framangreindum reglum og tilkynnt fyrirtækinu um kosninguna. 4. Fyrirtækjasamstæður Í fyrirtækjasamstæðum með sjálfstæðum dótturfélögum er með samkomulagi í samstarfs- nefndum viðkomandi dótturfélaga heimilt að stofna sameiginlega samstarfsnefnd á vettvangi móðurfélagsins sem í eiga sæti fulltrúar úr samstarfs- nefndum dótturfélaganna. Þar er heimilt að taka til umræðu mál sem hafa sameiginlega þýðingu fyrir dótturfélögin. Eins er heimilt, þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, að samstarfsnefnd á vettvangi móðurfyrirtækisins taki við hlutverki samstarfsnefnda einstakra dótturfyrirtækja. Sameiginleg samstarfsnefnd á vettvangi móðurfélagsins skal lögð niður krefjist annar hvor aðila, fulltrúar starfsmanna í nefndinni eða fulltrúar fyrirtækisins í nefndinni þess með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. 5. Samráðsnefnd SA og ASÍ Samráðsnefnd skipuð tveimur fulltrúum frá hvorum samningsaðila skal fjalla um fram- kvæmd samningsins svo og útfærslu og túlkun einstakra ákvæða eftir því sem þurfa þykir. Komi upp ágreiningur um túlkun samningsins er viðkomandi aðilum heimilt að vísa honum til nefndarinnar sem skal þá leitast við að ná sáttum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==