KYLFINGUR 2022
32 I KYLFINGUR I Þekktir þú til í Grafarholtinu áður en þú gerðist GR-ingur? Það er nú saga að segja frá því. Þegar ég spilaði Grafarholtið fyrst féll ég fyrir vellinum. Árið eftir, sennilega sumarið 1986, var einn Nesmaður sem tók við veitingasölunni í Grafarholti og hann bauð mér vinnu, í skúrnum á 10. teig. Ég var í Grafarholtinu öllum stundum það sumar og kynntist fjöl mörgum GR-ingum, því allir komu þeir jú við í skúrnum. Þarna voru hetjurnar Siggi P, Ragnar Ólafsson og fleiri góðir, Viggó, Sigurjón Arnarsson og ég gæti haldið lengi áfram að telja upp góða félaga. Líka eldri mennirnir, Svan Friðgeirsson, Kalli Jó og fleiri, sem áttu mikið í vellinum á þeim tíma. Framkvæmdastjóri var Björgólfur Lúðvíksson, sem er líka eftirminnilegur, ég held að hann hafi átt góðan þátt í barna- og unglingastarfinu sem þarna var, golfið var ekkert heldri mannasport þarna frekar en í dag. Ég var aukafélagi í GR þetta sumar 1986 en skipti alfarið úr Nesklúbbnum yfir í GR árið 1997. Hver er forgjöfin í dag? Það er önnur saga. Ég byrjaði sumarið ánægður með mig í 3,7 en endaði í 8. Sennilega methækkun hjá formanni á einu sumri. En ég næ þessu til baka, lofa því. Hefurðu farið holu í höggi? Já, fjórum sinnum. Fyrst á gömlu 6. á Nesvellinum, síðan á 6. og 11. í Grafarholtinu og 17. á Korpunni. Eftirminnileg atvik úr golfinu? Ég á endalausar minningar af golfvöllunum. Það er eftir minnilegt þegar Gunnar Haraldsson Nesmaður skaut niður lax í sjónum hægra megin við 8. braut á Nesinu. Það var góð Morgunblaðsfrétt um það afrek og mynd af laxinum til sönnunar. Ég held ég hafi ekki hlegið eins mikið og þegar rafmagnskerra vinar míns, Kristjáns Ólafs Jóhannessonar, trillaði út í skurð á 13. braut á Skaganum. Reyndar lenti ég í svipuðu á Ryder Cup vellinum á Celtic Manor í Wales. Var í brekku framan við 18. flöt er kerran mín rann til baka og út í tjörn. Ég hélt á einni kylfu og náði að krækja í pokann og veiða hann upp. Við vorum 16 lögmenn þarna í ferð, ég í síðasta hollinu. Hinir á barnum, horfðu á þetta og einn tók þetta upp á síma. Ef ég á að velja besta golfhöggið sem ég hef orðið vitni að, þá verð ég að benda á mömmu. Við vorum að spila í Borgarnesi, hún nýlega byrjuð og fékk örn á par 4 holu. Driver og 3tré beint ofaní. Hún átti þrjú högg í forgjöf á holuna og fékk þannig 7 punkta. Önnur áhugamál? Fótboltinn er mikið áhugamál hjá mér og ég fylgist með körfunni líka. KR er mitt lið og hefur alltaf verið stór partur í mínu lífi. Ég lyfti þrisvari í viku með nokkrum félögum úr lögmennskunni. Svo er golfið náttúrlega svakalegt áhugamál að hafa. Ég hef áhuga á flestu sem viðkemur golfi. Á aðalfundinum 2021 bentir þú á þá athyglisverðu staðreynd að aðeins 30% félagsmanna notuðu 70% allra rástíma. Hefur það lagast eitthvað? Það býr mikið undir þessari spurningu! Undanfarin ár hefur verið mikil barátta um rástíma. Þegar ég tók við formennsku var eitt helsta kvörtunarefnið hversu erfitt væri að fá rás tíma, sem tengdist gagnrýni á að félagsmenn væru orðnir allt of margir. Við settum nefnd í að skoða þetta ofan í kjöl inn, meðal annars tölfræðina sem þú spyrð um, og hver skyldu áhrif covid hafa verið. Við ákváðum nokkrar aðgerðir til að takast á við þetta. Í fyrsta lagi hættum að bjóða upp á hópaskráningar, sem að mörgu leyti var miður en óhjá kvæmilegt. Í öðru lagi styttum við bil milli rástíma í 8 mín útur, sem við byggðum á góðri reynslu frá sumrinu áður þegar farið var í 9 og 8 mínútur til skiptis. Í þriðja lagi lengdum við skráningartímann á þann veg að við opnuðum fyrir skráningu átta daga fram í tímann í golfbox. Í fjórða lagi fækkuðum við félagsmönnum lítillega, þ.e.a.s. við hleyptum færri inn af biðlista heldur en nam fjölda þeirra sem hættu. Í vor þegar við tilkynntum þetta krossaði ég fingur með hvernig þetta myndi ganga. Mitt mat er að þessar aðgerðir hafi heppnast vel og að aðgengi að völlunum hafi jafnast. Við verðum samt að halda áfram að fylgjast vel með rás tímaskráningunni og það eru fleiri aðgerðir sem við getum gripið til, ef þarf, t.d. með því að setja takmarkanir á hvað hver og einn félagsmaður getur verið með marga skráða rástíma í golfbox-kerfinu á hverjum tíma. Fleiri leiðir eru til, eins og minnka félagafjöldann enn frekar (og hækka þá árgjaldið á móti), eða taka upp gjald per hring auk félags gjalds. Vandamálið við þessar fleiri mögulegu aðgerðir er að engin þeirra er án sársauka og því förum við ekki í svoleiðis nema við metum það algerlega óumflýjanlegt. Átta mínútur á milli rástíma! – Er það ekki nokkuð bratt eða reyndist það vel? Framan af sumri reyndist það merkilega vel, en við mátum það samt þannig er leið á sumarið að þetta hefði verið of bratt. Það mynduðust tappar á vissum stöðum og það er óásættanlegt þegar hringurinn tekur nær fimm tímum held ur en fjórum. Það verður einnig að geta þess að svona þétt útræsing veldur auknu álagi á alla innviði hjá okkur, bíla stæði, veitingasölu, á völlunum sjálfum og sérstaklega í vallareftirliti. Við teljum það ekki eftir okkur, en við getum ekki litið framhjá leikhraða. Við bökkuðum því aðeins með þetta í haust, fórum aftur í 9 mínútur, og mér finnst líklegt að það verði þannig næsta sumar, þó það sé ekki í mínum höndum að ákveða það einn. Hvernig tókst tilraunin með 18. brautina í Grafarholtinu? Ég veit ekki hvort tilraun sé rétta orðið, en það hefur ekki verið gert áður hjá okkur að taka svona heila braut og endurbyggja, frá teigum að flöt, með nútíma aðferðum. Mitt mat er að þessi framkvæmd sé að takast afar vel. Markmiðið er að opna hana næsta vor, kannski ummánaða mótin maí/júní, og vonandi gengur það eftir. Í þessum töluðu orðum er 18. brautin hvorutveggja sléttasta og grænasta brautin á vellinum. Legan á henni og mótun bönkera er frábær. Frá teigum sést öll brautin og flötin líka, sem er meiriháttar breyting á holunni frá því sem var. Hún á samt eftir að spilast erfiðar, sérstaklega fyrir lágforgjafar kylfinga, þar sem bönkerarnir verða meira í leik og lend ingarsvæði fyrir teighöggið þrengra. Það er svo margt um þessa framkvæmd að segja. Ég vil búa félagsmenn undir að
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==