KYLFINGUR 2022
I KYLFINGUR I 33 þegar brautin verður opnuð verði hún aðeins gisin og ekki jafn góð og við viljum hafa brautirnar okkar, en það mun lagast með tímanum. Við sjáum ekki endanlegan árangur fyrr en þarnæsta sumar. Enn eitt sem ég vil segja er að það er margt sem við höfum lært og við teljum að það eigi að vera hægt að láta næstu framkvæmdir taka mun skemmri tíma en þessa. Þar spila nokkrir þættir inn í sem ekki er tími til að fara yfir hér. Ég vil líka taka fram að vallarstarfsmenn okkar, vallarstjóri og framkvæmdastjóri hafa unnið frá bærlega að þessu verki ásamt öðrum verkefnum. Það er mikil vandvirkni og hugsun sem býr að baki því hvernig þetta hefur verið gert. Ég vil einnig nefna Tom McKenzie arkitekt og Steina á jarðýtunni í þessu sambandi. Í Korpubikarnum tóku okkar bestu kylfingar Korpuna í nefið ef svo má segja. Viltu tjá þig eitthvað um það? Þeir gerðu það heldur betur, það er fáheyrt að þessi völlur okkar sé spilaður á 19 höggum undir pari á þremur hringjum og þá sérstaklega þegar litið er til þess að einn daginn var hífandi norðanrok. Auðvitað er frábært að sjá þetta og það sýnir að okkar bestu kylfingar eru að verða betri og voru í miklu stuði þarna, en ég vil ekki horfa framhjá vellinum í þessu sambandi, því ef völlurinn væri á sama erfiðleikastuðli og keppnisvellir erlendis, þá væru okkar menn með þessu skori að vinna risamótin úti, sem þeir eru ekki að gera ennþá. Ég vil bara viðurkenna þetta strax og ég met það þannig að það sama gildi um aðra okkar bestu velli. Eins og fram hefur komið fengum við sænskan arkitekt, Magnus Suneson í lið með okkur til að gera plan um hvernig við þró um Korpuna áfram. Liður í því er að lengja völlinn á öftustu teigum og gera ýmsar breytingar sem láta lítið yfir sér, en munu gera völlinn mun erfiðari fyrir bestu kylfingana án þess að það trufli leik hins almenna kylfings jafn mikið. Er GR með stefnu gagnvart loftlagsvánni? Já, GR er þátttakandi í sjálfbærniverkefni sem heitir Klappir og GSÍ hefur milligöngu um. Svo erum við meðvituð um að endurnýjun á vélaflota hefur mikið að segja fyrir umhverfið, nýjar sláttuvélar eru mun umhverfisvænni en þær gömlu. Við í GR viljum vera í fremstu röð hvað þetta snertir. Golf er umhverfisvæn íþrótt og við þurfum að koma því vel á framfæri. Sama er að segja um lýðheilsuþáttinn sem er risastór í golfinu. Þegar fjallað er um lýðheilsu er golfíþróttin góður byrjunarpunktur. Hvað er framundan varðandi vellina okkar? Það er nóg framundan. Í Grafarholtinu er það lokafrágangur á 18. brautinni, þá er vinna við nýja 17. braut í fullum gangi og markmiðið er að taka hana í notkun í kringum næsta meistaramót. Það skal verða frábær par 3 hola, signature hola, svo ég sletti aðeins, við eigum ekki gott íslenskt orð fyrir signature svo ég muni. Vinna við þá braut mun þó ekki trufla leik, svo ég taki það fram. Það verða mögulega fleiri verkefni tekin í Grafarholti í vetur, en okkur er einnig um hugað um að trufla leik eins lítið og mögulegt er. Við erum einnig meðvituð um mikilvægi þess að fara í sléttun brauta og við þurfum að taka umræðu um það í hvaða skrefum við gerum það í áframhaldinu. Við höfum núna reynsluna af 18. 18. brautin í Grafarholti var endurbyggð frá teig að flöt og er þetta nýjung hjá GR. Það er mat Gísla Guðna að vel hafi til tekist og víst er það rétt að brautin er sú sléttasta og grænasta á vellinum. Efri myndin er tekin við upphaf framkvæmdanna.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==