KYLFINGUR 2022
braut og ein leið er að halda áfram svipað, eða að vinna að endurbótum í stærri skrefum, en þá erum við farin að tala um að loka nokkrum brautum í kannski heilt sumar, sem er mikil ákvörðun. Eins og stjórnmálamenn segja, þá þurfum við að eiga gott samtal við félagsmenn um hvaða leiðir við veljum í þessum efnum. Verkefnið á Korpunni er annars eðlis. Eins og fram kom hér áður, þá fengum við Magnus Suneson til að gera masterplan um hvernig við þróum völlinn á lengri tíma. Félagsmenn munu sjá umtalsverðar breytingar á Korpunni strax næsta sumar, án þess að þær felist í stórframkvæmdum eins og við stöndum í í Grafarholtinu. Svo vil ég nefna að núna í vetur verða gerðar nýjar æfinga flatir við fyrstu teiga á báðum völlum, annars vegar ofan á verslunarhúsnæðinu í Grafarholti og hins vegar við hliðina á nýju upphitunarbásunum á Korpu. Þessar flatir verða byggðar með sömu aðferðum og við munum nota við gerð nýrra flata hér eftir, með vökvunarkerfi og tilheyrandi. Þetta eiga því að verða mjög góðar flatir og frábært að hafa þær svona nálægt fyrstu teigunum til upphitunar, auk þess sem þær munu fegra umhverfið. Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? Nei ætli þetta sé ekki orðið of langt nú þegar. Ég hvet samt alla til að fara í Bása. Betri æfingaaðstaða er ekki til og hún á eftir að verða enn betri, eins og kynnt verður fyrir félagsmönnum á næstunni. Ráðist var í gerð nýrra teiga á 1. braut í Grafarholtinu og er það mál manna að vel hafi til tekist. Nú í vetur verða gerðar æfinga- og upphitunarflatir við fyrstu teigana á báðum völlum. Þessar flatir verða byggðar upp eins og aðrar flatir á völlunum hér eftir. Eins og sjá má af myndinni eru framkvæmdirnar komnar vel af stað.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==