KYLFINGUR 2022
I KYLFINGUR I 65 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, er stigameistari 2022 á stigamótaröð GSÍ. Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhanna Lea er stigameistari. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, varð önnur og Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2022, varð þriðja. Keppt var í fyrsta sinn um stigameistaratitilinn í kvennaflokki árið 1989. Jóhanna Lea lék á alls fjórum mótum af alls sex á tímabilinu. Hún sigraði á einu þeirra, Leirumótinu hjá GS, hún varð ein í öðru sæti í Hvaleyrarbikarnum og í þriðja sæti í B59 Hotel mótinu. Á Íslandsmótinu í golfi endaði hún á meðal 20 efstu. Við óskum Jóhönnu Leu til hamingju með titilinn! Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir stigameistari 2022 Félagsmenn hafa margir orðið varir við merkingar á Korpunni undanfarna daga. Hjá okkur hefur verið í heimsókn golfvallararkitekt og ráðgjafi frá Svíþjóð, Magnus Sunesson, sem hefur verið að taka út völlinn með tilliti til ásýndar, betrumbóta og áframhaldandi þróunar á næstu árum. Magnus hefur gengið allar þrjár lykkjurnar – Sjóinn, Ána og Landið ásamt því að gera úttekt á Thorsvelli. Spreyjaðar línur og lítil flögg eru tillögur hans að breyttum slætti brauta og svæða utan brauta. Það hefur verið bæði gaman og áhugavert að heyra hugmyndir Magnusar. Hann mun svo vinna úr heimsókninni og skila endanlegum tillögum til okkar sem félagsmenn fá svo frekari fréttir af. Magnus Sunesson golfvallararkitekt og ráðgjafi gerir úttekt á Korpu Íslenska karlalandsliðið endaði í 25. sæti af alls 72 þjóðum sem tóku þátt. Aðeins einu sinni áður hafa jafnmargar þjóðir tekið þátt, í Tyrklandi árið 2012. Árangur Íslands er á meðal því besta hjá íslenska liðinu á HM. Árið 2000 varð Ísland í 20. sæti og árið 2010 endaði Ísland í 19. sæti. Hákon Örn Magnússon, Sigurður Bjarki Blumenstein og Hlynur Bergsson skipuðu íslenska liðið. Með þeim í för voru Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri og Baldur Gunnbjörnsson sjúkraþjálfari. Hákon Örn lék frábært golf á HM og var á meðal 20 efstu í skori hjá einstakl ingum. Ekki er keppt í einstaklingskeppni á HM. Hákon Örn lék hringina fjóra á 9 höggum undir pari vallar samtals (72- 66-70-69) eða 277 höggum. Mótið fór nú fram í 32. skipti og hófst keppnin miðvikudaginn 31. ágúst og lokadagurinn var 3. september. Keppt var á tveimur völlum. Le Golf National og Golf de Saint-Nom-La-Bretèche, sem eru rétt utan við París í Frakklandi.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==