KYLFINGUR 2022
66 I KYLFINGUR I Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK og Kristján Þór Einarsson GM sigruðu í Korpubikarnum sem fram fór í sam vinnu við Icelandair á Korpúlfsstaðavelli dagana 19.–21. ágúst 2022. Mótið var jafnframt lokamótið á stigamótaröð GSÍ. Keppniformið var höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Guðrún Brá lék frábært golf og lék samtals á 12 höggum undir pari vallar. Hún sigraði með 12 högga mun. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Íslands meistari í golfi 2022, varð önnur á pari vallar og Berglind Björnsdóttir, GR, varð þriðja á 2 höggum yfir pari. Kristján Þór, sem er Íslandsmeistari í golfi 2022, lék á 18 höggum undir pari vallar sem er samkvæmt bestu heim ildum besti árangur sem íslenskur kylf ingur hefur náð á 54 holum. Axel Bóasson, GK, sem er þrefaldur Íslandsmeistari, átti einnig frábæra þrjá keppnisdaga en hann lék á 16 höggum undir pari vallar. Hlynur Bergs son og Hjalti Hlíðberg Jónasson, báðir í GKG og Böðvar Bragi Pálsson GR, léku allir á 8 höggum undir pari vallar. Alls léku 16 leikmenn í mótinu í karlaflokki undir pari vallar – sem er frábær árangur í golfmóti á Íslandi. Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna og óskum sigurvegurum til hamingju með frábæran árangur! Golfklúbbur Reykjavíkur & Icelandair. Frábær árangur í Korpubikarnum Guðrún Brá og Kristján Þór sigurvegarar á sögulegu skori Verðskuldaður sigurvegari, Guðrún Brá Björgvinsdóttir ásamt okkar konum Perlu Sól Sigurbrandsdóttur og Berglindi Björnsdóttur að leik loknum. Myndir /seth@golf.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==