KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 13 Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn á Korp­ úlfsstöðum þriðjudaginn 5. desember og var þátttaka góð. Formaður félagsins, Gísli Guðni Hall, gerði grein fyrir skýrslu formanns um störf stjórnar á árinu. Harpa Ægis­ dóttir, fjármálastjóri kynnti ársreikning félagsins og fór yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Gísli Guðni bauð sig fram til áframhaldandi formennsku og hefur nú sitt þriðja ár sem sitjandi formaður. Sitjandi stjórnarmenn – Elín Sveinsdóttir, Guðmundur Arason og Margeir Vilhjálmsson buðu sig fram til áframhaldandi setu í aðalstjórn en engin ný framboð komu fram. Þau voru þannig sjálfkjörin í aðalstjórn til næstu tveggja ára. Fyrir sátu í aðalstjórn Brynjar Jóhannesson, Kristín Eysteinsdóttir og Ólafur William Hand sem kjörin voru til tveggja ára á aðalfundi 2022. Í varastjórn gáfu kost á sér Arnór Ingi Finnbjörnsson, Hrannar M. Hallkelsson og Þórey Jónsdóttir og eru stjórn og varastjórn þannig fullskipuð. Hrannar kemur nýr inn í varastjórn félagsins. Rekstur klúbbsins gekk vel á starfsárinu 2022-2023 og námu tekjur alls 683 milljónum króna og rekstrarafgangur 79.5 milljónum. Heildareignir nema 1.517 milljónum króna og eiginfjárstaðan sem og lausafjárstaðan er sterk. Á rekstrarárinu störfuðu 16 heilsársstarfsmenn hjá klúbbnum og að auki 64 sumarstarfsmenn. Að öðru leyti vísar stjórn klúbbsins til meðfylgjandi ársreiknings um rekstur og fjárhagsstöðu. Golfklúbbur Reykjavíkur annast rekstur 18 holur golfvallar og 6 holu æfingavallar í Grafarholti ásamt rekstri 27 holu golfvallar og 9 holu æfingavallar á Korpúlfsstöðum. Enn­ GÓÐUR REKSTUR OG MIKLAR FRAM­ KVÆMDIR Á VÖLLUM FÉLAGSINS AÐALFUNDUR GR Gísli Guðni Hall, formaður GR, flytur skýrslu stjórnar. Harpa Ægisdóttir fjármálastjóri kynnti ársreikning félagsins.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==