KYLFINGUR 2023
14 I KYLFINGUR I fremur rekur klúbburinn æfingaaðstöðu Bása í Grafarholti auk inniæfinga- og félagsaðstöðu á Korpúlfsstöðum. Á starfsárinu voru miklar framkvæmdir á vallarsvæðum félagsins, má þar nefna nýja 17. braut Grafarholts, frágang og formlega opnun 18. brautar, 3. teigur endurnýjaður og viðbótar bílastæði við Bása. Uppbygging á nýrri púttflöt á Korpúlfsstöðum, nýr bakteigur á 12. og 13. braut, nýr framteigur á 17. braut, göngustígagerð og malbikun. Í klúbbhúsi Korpu var fjárfest í nýjum stólum og hljóð einangrun sett upp í veitingasal sem og fullbúin aðstaða útbúin með Trackman golfhermum sem ætluð er fyrir barna-, unglinga-, og afreksstarf. Í Básum hafa miklar fram kvæmdir farið fram, uppsetning á Trackman skjáum og hitalömpum á alla bása 1. og 2. hæðar auk þess sem hurðir voru settar á 2. hæð sem og aðrar minniháttar framkvæmdir. Fjárhagsáætlun GR 2024 var samþykkt á aðalfundi. Félagsgjöld 2024 verða: Félagsmenn 19-26 ára, kr. 76.300 Félagsmenn 27-72 ára, kr. 152.600 Félagsmenn 73 og eldri, kr. 130.800 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 98.100 *enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár samfellt Leiknir hringir á árinu voru 93.970 samanborið við 108.036 á árinu á undan. Fækkunin skýrist af slæmu árferði í vor, en vellirnir opnuðu nokkrum vikum síðar en í venjulegu árferði. Leiknir hringir á vinavöllum voru töluvert fleiri í ár, 5.413 samanborið við 4.713 árið á undan, sem líklegast skýrist af sömu ástæðum. Kynjahlutfall er 39% konur og 61% karla, sem er bæting frá fyrra ári. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Árna Tómassyni og Guð mundi Frímannssyni, endurskoðendum, fyrir sína vinnu og kjörnefnd fyrir sitt starf. Sérstakar þakkir færum við Ólafi Arinbirni fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku. Stjórn, framkvæmdarstjóri og starfsfólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir gott starfsár. Gísli Guðni Hall, formaður GR, þakkaði Ólafíu Þórunni gjöfina og lofaði að hún fengi veglegan sess hjá GR. Ólafía Þórunn mætti til aðalfundar GR og afhenti klúbbnum einn af þeim þremur pokum sem hún notaði á LPGA túrnum. Pokann afhenti hún klúbbnum sem þakklætisvott fyrir allan þann stuðning sem henni hefur verið sýndur í gegnum tíðina og á sínum ferli, hún sagðist vonast til þess að pokinn yrði yngri kylfingum hvatning í framtíðinni. Fyrir rúmu ári tilkynnti Ólafía Þórunn að hún hefði ákveðið að hætta keppnisgolfi og snúa sér að öðrum verkefnum. Gísli Guðni Hall þakkaði, fyrir hönd GR, Ólafíu Þórunni fyrir gjöfina og allt það góða sem hún hefur gert fyrir Golfklúbb Reykjavíkur sem fyrirmynd og afreksmaður. Það er ekki á neinn hallað þegar fullyrt er að Ólafia Þórunn Kristinsdóttir er sá íslenski kylfingur sem lengst hefur náð í keppnisgolfi. Hún er eini íslenski kvenkylfingurinn sem hefur náð inn á báðar stærstumótaraðirnar, LET Evrópumótaröðina og LPGA mótaröðina í Bandaríkjunum, og náði á ferli sínum að leika á öllum fimm risamótunum. Þá var hún kosin Íþróttakona Reykjavíkur árin 2016 og 2017, og árið 2017 var hún kjörin íþróttamaður ársins hér á landi. Hún er eini kylfingurinn sem hefur hlotið þá nafnbót. Ólafía Þórunn ólst upp í GR frá barnsaldri og keppti alla tíð undir okkar merkj um. Hún er og verður frábær fyrirmynd fyrir okkar yngri kylfinga. Pokanum verður fundinn öruggur og viðeigandi staður hjá okkur sagði Gísli Guðni að lokum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==