KYLFINGUR 2023
I KYLFINGUR I 19 Hér verður farið yfir það helsta sem hefur verið á döfinni í framkvæmdum og fjárfestingum hjá okkur á árinu, og það sem framundan er á komandi ári. Við mælummeð að þið skoðið mynd irnar samhliða lestrinum. Grafarholtsvöllur Á síðasta ári var 18. brautin endurgerð allt frá teigum fram að vegi. Á þessu ári hefur margt smátt verið unnið við brautina, eins og frágangur á glompum. Við opnuðum brautina í byrjun ágúst mánaðar. Við urðum ekki vör við annað en ánægju kylfinga með brautina en hún á bara eftir að þroskast og verða enn betri. Í fyrra voru allir teigar á 1. brautinni endurgerðir. Sú framkvæmd gekk mjög vel og var því verkefni í raun lokið þá. Í ár var 17. brautin endurgerð í nýju landslagi, eins og þið hafið líklega flest séð. Þetta var gríðarstórt verkefni. Auk nýrra teiga, forflatar, flatar o.s.frv., þá voru viðbótarliðir í framkvæmdinni eins og kaup á nýrri brú yfir Grafarlæk, miklir efnisflutningar til að mæta lágri grunnvatnsstöðu, gerð hlaðins veggs, sem er ekki einungis hugsaður fyrir útlitið, heldur til að treysta burð í brautinni og stígagerð. Með þessari breytingu erum við að stækka völlinn og búa til svigrúm fyrir breytingar á brautunum í kring. Við ráðgerum að opna brautina næsta vor en ekki láta ykkur bregða um of ef brautin opnar einhverjum vikum seinna en aðrar brautir. Við höfum gömlu 17. brautina upp á að hlaupa á meðan. Það var af mörgu að taka þegar ákveðin voru næstu skref í endurbótum vallarins. Fyrir valinu urðu þessi verk efni: Sléttun fremri hluta 4. brautar Þessi hluti vallarins hefur alla tíð verið Framkvæmdir og fjárfestingar hjá GR Grafarholtsvöllur, 4. braut.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==