KYLFINGUR 2023
20 I KYLFINGUR I afar ósléttur og í miklum halla. Nú verður þetta lagað og lögun brautar innar breytt lítillega, með tilliti til þess að brautin verður lengd á aftari teig um. Hafist var handa við verkefnið er vellinum var lokað í byrjun október og er jarðvinnu lokið. Við ákváðum að þessi brautarhluti verði tyrfður þannig að unnt verði að opna hann sem fyrst næsta vor. Við reiknum með að sá í svæði utan brautar, sem verða þá tímabundið merkt grund í aðgerð. Er þetta af kostnaðarástæðum. Ný 1. flöt. Gerð verður ný flöt á fyrstu braut sem verður aftan við núverandi flöt og í stefnu ögn meira til hægri. Með þessu ætti flæði í útræsingu frá 1. teig að verða betra og slysahætta á 2. teig verður lágmörkuð. Ný 3. flöt Gerð verður ný flöt á 3. braut, hægra megin við núverandi flöt og ögn aftar, á svæði sem nær að gömlu 17. flötinni. Tilgangurinn með þessari breytingu er m.a. að gera okkur kleift að opna nýja teiga á 4. brautinni án þess að kylfingar á 3. flöt verði í hættu. Við ráðgerum að ekki verði hafist handa við þessa breytingu fyrr en næsta vor/sumar, eftir að við opnum nýju 17. brautina, þar sem sú framkvæmd felur í sér að gamla 17. flötin verður afmáð. Nýr framteigur á 6. braut. Gerður verður nýr framteigur á 6. braut, mun framar en núverandi fram teigur og neðar til vinstri. Núverandi 6. Grafarholtsvöllur. Hin nýja og glæsilega 17. braut. Grafarholtsvöllur. Teigur á 3. braut endurbyggður.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==