KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 23 braut er í rauninni allt of erfið af framteigum, þegar horft er til lengdar, hversu þröng aðkoman að flötinni er og svæði kringum flötina erfitt. Ætlunin með þessu er að gera brautina sann­ gjarnari af fremri teigum og í leiðinni flýta leik. Smærri framkvæmdir Auk atriða sem hér hafa verið talin upp er áhersla á smærri framkvæmdir, t.d. endurgerð uppstiga á nokkra teiga. Allar framkvæmdir sem hér eru tald­ ar upp eru á grundvelli hönnunar Tom McKenzie, sem hefur verið kynnt fé­ lagsmönnum. Einhver kann að spyrja sig hvers vegna þessi verkefni voru valin frekar en önnur, t.d. 7. eða 11. braut sem margir félagsmenn hafa beðið eftir endurbótum á. Svarið er í stuttu máli að okkur var ráðlagt af fagmönnum að vinna okkur áfram út frá núverandi framkvæmdasvæði milli 10. og 17. brautar frekar en að fara að vinna allt annars staðar á vellinum. Þetta tengist lagningu á vökvunarkerfi samhliða framkvæmdum og jarðraski sem fylgja svona viðamiklum fram­ kvæmdum. Einnig var haft aðmarkmiði að næsta sumar fái kylfingar að spila Grafarholtið án meiriháttar truflana á leik vegna framkvæmda. Korpúlfsstaðir Framundan eru eftirfarandi verkefni á Korpunni: Ný æfingapúttflöt Gerð nýju æfingaflatarinnar var verk­ efni þessa árs. Framkvæmdinni er því sem næst lokið, þ.m.t. stígagerð og frágangi í kringum flötina. Hún verður tekin í gagnið næsta sumar, vonandi fyrir Meistaramót. Lagfæring á svæði kringum hóla á 1. braut á Sjónum Svæðin þarna í kring hafa ekki verið nægilega gróin og hafa valdið mörgum kylfingnum vandræðum. Þetta verður lagað þannig að högg yfir eða framhjá holunum verður aðgengilegra, sérstak­ lega fyrir þá sem hafa minni högglengd. Nýir framteigar á 1., 3. og 4. braut á Sjónum Nú í haust hafa verið gerðir nýir fram­ teigar á þessum holum, þar sem þær þóttu einfaldlega of langar og erfiðar frá framteigum, sérstaklega í byrjun hrings. Þessar framkvæmdir eru langt komnar og hvetjum við félagsmenn til að fá sér göngutúr og virða þær fyrir sér. Korpúlfsstaðavöllur. Nýja æfingaflötin að mestu frágengin. Korpúlfsstaðavöllur. Nýr og krefjandi bakteigur á 12. braut

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==