KYLFINGUR 2023

24 I KYLFINGUR I Nýir bakteigar á nokkrum holum Nú í haust hefur einnig verið unnið að gerð nýrra bakteiga, þar sem tilgang­ urinn er að viðhalda og styrkja völlinn sem keppnisvöll í hæsta gæðaflokki. Nú þegar hafa verið gerðir nýir bak­ teigar á 12. og 13. braut á Ánni og má geta þess að 13. brautin lengist um rúma 70 metra við þetta. Fyrirhugað er að gera fleiri nýja bakteiga og er 5. braut á Sjónum næst í röðinni. Thorsvöllur Áhersla verður á að gera Thorsvöll betri en hann hefur verið. Unnið er að aðgerðaáætlun og verða næstu fram­ kvæmdir við Thorsvöll kynntar síðar. Inniæfingaaðstaða á Korpúlfsstöðum Síðastliðinn vetur var innréttað nýtt æfingaherbergi á efri hæð Korpúlfs­ staðaskála fyrir barna-, unglinga- og af­ reksstarfið, með þremur golfhermum. Með þessu, auk breytinga í Básum, sem hér verður vikið að höfum við stórbætt aðstöðu þessarra hópa og starfsaðstöðu þjálfarateymis okkar. Básar Fjárfestingar í Básum hafa ekki farið framhjá félagsmönnum. Trackman skjáir og hitalampar hafa settir við alla bása á fyrstu og annarri hæð. Áður en það var gert var skipt um öll gólfefni, þ.m.t. sláttumottur og skilrúm endur­ gerð. Þá hafa verið settar „bílskúrs­ hurðir“ á 2. hæðina, þannig að hún verði varin fyrir veðri og vindum. Með þessum breytingum öllum hefur að­ staða til æfinga verið bætt til mikilla muna. Varmi frá hitalömpunum er þannig að við getum með góðri sam­ visku boðið öll velkomin í hlýjuna í Bása, jafnvel þegar hörkufrost er úti. Bílastæði Það hafa skapast bílastæðavandamál á báðum völlunum okkar og við Bása. Við höfumbrugðist við því í Grafarholti/ Básum nú þegar með því að gera rúm­ lega 20 ný stæði. Ný bílastæði á Korp­ úlfsstöðum er á teikniborðinu. Fjárfestingar í golfbílum, velum og tækjum Á árinu höfum við fjárfest í vélum, tækjum og golfbílum. Golfbílar. Á árinu voru keyptir 10 nýir golfbílar, eins og á síðasta ári. Með því höfum við endurnýjað golfbílaflotann okkar að verulegu leyti sem kominn var á tíma. Golfbílarnir gegna afar mikilvægu þjónustuhlutverki hjá okkur og er forsenda fyrir því að margir félagsmenn okkar, sérstaklega í elsta hópnum, geti hreinlega leikið golf á golfvelli. Sláttuvélar Sláttuvélafloti okkar er kominn á tíma og hann orðinn of viðhaldsfrekur. Við höfum tekið skref í endurnýjun með kaupum á nýjum vélum. Nýjar vélar eru umhverfisvænar (ganga á raf­ magni), skila mun betri gæðum og eru hagkvæmari í rekstri. Þetta eru því gríðarmikilvægar fjárfestingar þó þær séu ekki jafn sýnilegar okkur kylfingum og t.d. vallarframkvæmdir. Tæki til vallarframkvæmda Við höfum einnig keypt vinnuvélar til vallarframkvæmdar til að bæta af­ kastagetu okkar. Ekki verður nánar farið út í það hér, en í dag erum við gríðarlega vel búin tækjum til fram­ kvæmda, sem er forsenda fyrir fram­ kvæmdunum sem við höfum staðið og þeim sem framundan eru. Stærri verkefni sem bíða okkar. Eins og áður hefur komið fram höfum við gert samninga við Reykjavíkurborg, sem eru forsenda fyrir uppbyggingu á nýrri inniæfingaaðstöðu við Bása og gerð nýrrar þjónustubyggingar/véla­ geymslu í Grafarholti, þar sem aðstaða starfsmanna okkar þar er langt í frá viðunandi. Framgangur þessara verk­ efna er hægari en við hefðum helst kosið, sem skýrist aðallega af efna­ hagsaðstæðum í þjóðfélaginu. Þessi mál eru þó á hreyfingu. Þjónustubygg­ ing/vélageymsla er á undan í röðinni og við vonumst til að geta fært ykkur félagsmönnum frekari fréttir af því verkefni á næstunni. Með golf- og jólakveðju og von um farsælt komandi golfár. Stjórn GR Korpúlfsstaðavöllur. Nýr bakteigur á 13. braut lengir brautina um 70 metra.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==