KYLFINGUR 2023
28 I KYLFINGUR I Hvenær varðstu félagi í GR? Ég gekk í GR árið 1999. Af hverju varð golf fyrir valinu? Við vorum nokkrir félagar sem vorum hættir í keppnisíþróttum sem við höfð um stundað og ákváðum að prófa að spila golf saman. Við féllum allir fyrir íþróttinni og ekki varð aftur snúið. Við fengum útrás fyrir keppnisskapið og fundum samhliða frábæran vettvang til að hittast reglulega og efla vinskap inn. Hver er forgjöfin í dag? 9,3 á niðurleið (vonandi). Korpan eða Grafarholt? Þessi er erfið. Tveir ólíkir en frábærir golfvellir. Það er þó eitthvað mjög sér stakt við það að spila Grafarholtið sem dregur mig örlítið oftar þangað. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Já, já það hefur bara gengið vel. Við félagarnir erum alltaf að keppa bæði innbyrðis og við aðra hópa í GR. Litlu sigrarnir þar eru alltaf ljúfir og svo er auðvitað allt í lagi að tapa líka en bara ekki of oft. Ég vann 2. flokkinn í meist armótinu fyrir nokkrum árum sem var skemmtilegt en eftirminnilegast er að hafa orðið Íslandsmeistari í golfi. Það tókst mér að gera án þess að slá eitt einasta golfhögg þar sem ég var liðs stjóri GR sveitar karla sem sigraði á Íslandsmóti golfklúbba árið 2011. Það var einstakt að starfa með þeim frá bæru drengjum sem voru í því liði. Hefurðu farið holu í höggi? Já, ég hef farið einu sinni holu í höggi. Félögunum finnst það ekki sérstaklega merkilegt högg því það var „bara” á bollanum á Oddi sem er vissulega frekar stutt hola. Ég hefði því ekkert á móti því að fara aftur holu í höggi og slökkva á þessu vitleysistali í þeim. Eftirminnileg atvik eða skemmti legar sögur? Það hefur margt eftirminnilegt gerst á golfvellinum. Ég var lengi formaður af reksnefndar GR og tengi mörg eftir minnileg atvik við sigra okkar frábæra afreksfólks. Íslandsmeistaratitlar þeirra eru margir og eftirminnilegir. Það er að mínu mati einstakt að við GR-ingar eigum alla þessa frábæru atvinnumenn í golfi. Stórkostlegur ferill Ólafíu og frá bær árangur Gumma, Hadda og Andra sem atvinnumenn og nú nýhafinn at vinnumannaferill Röggu eru allt stór afrek út af fyrir sig. Sem lítið tannhjól í því að skapa aðstæður fyrir allt þetta góða fólk að blómstra í skilur eftir góðar minningar og heldur áfram að gefa. Stelpurnar mínar þrjár voru allar í golfi. Þær döfnuðu, styrktust og þrosk uðust í golfinu og var ánægjulegt að fylgjast með þeim. Tvær þeirra héldu áfram upp í meistaraflokk og gerðu góða hluti þar, sem var mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim upplifa. Önnur spilaði svo full fjögur ár í háskólagolfi í USA og við hjónin vorum svo heppin að sjá hana spila á 66 (-6) höggum í lokamótinu á ferlinum. Hringurinn endaði með því að slegið var í stöngina í öðru höggi á par 5 holu og léttum erni rennt í holuna. Það var geggjaður og eftirminnilegur dagur. Sagan af því þegar ég fór holu í höggi er ágæt. Ég hafði alltaf talað digur barkalega um að þegar ég færi holu í Ragnar Baldursson: ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Ragnar Baldursson á golfvellinum fræga, Kingsbarns.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==