KYLFINGUR 2023
höggi þá mundi ég bjóða öllum í skálanum upp á drykk eftir hringinn. Ég fór holu í höggi á þriðjudagsmorgni á Oddinum. Í skálanum voru tvær mjög vingjarnlegar eldri konur sem þáðu kaffi og kleinu. Eftirminnilegasta sagan er þó lík lega frá Bay Hill. Við hjónin og yngsta dóttir okkar spiluðum þar með yndislegum íslenskum hjónum. Eftir níu holur fór ég á snyrtinguna sem er í litlu húsi á milli 9. flatar og 10. teigs. Ég vippa mér inn um dyrnar en inni var niðamyrkur og ég fann hvergi rofa til að kveikja ljósið. Svo allt í einu birtist mannvera fyrir framan mig og stóð þar enginn annar en Arnold Palmer heitinn nýbúinn að nýta sér aðstöðuna. Mér brá auðvitað en hafði rænu á að biðja hann afsökunar á að hafa ruðst inn á hann. Hann brosti til mín, rétti mér höndina og sagði þetta ekki vera neitt mál en sagðist vera hættur að læsa hurðinni á eftir sér. Þá áttaði ég mig að að staðan var aðeins fyrir einn í einu og var frekar plásslítil. Það var frábært að hitta þennan mikla meistara og eiga við hann nokkur orð. Vissulega við frekar krefjandi aðstæður fyrir okkur báða en hann lét sér fátt um finnast hvað það varðaði. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Það er mjög erfitt að gera upp á milli allra þeirra frábæru kylfinga sem ég hef spilað með þar sem ég hef verið svo heppinn að fá að spila með mörgum af bestu kylfingum landsins. Ég vil því ekki nefna neinn einn. Bestu golfhringir sem ég hef orðið vitni að í holli sem ég hef spilað í eru þó klárlega með Andra Þór Björnssyni, 64 högg (-7) í Grafarholti og 66 (-6) af öftustu teigum á Saurines á Spáni. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Það er erfitt að nefna einn völl. Í minningunni var mesta upplifunin var að spila Old Course á St. Andrews en sá besti er líklega Portmarnock í Dublin. Hann er magnaður. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? GR er vel rekinn klúbbur og hefur á að skipa úrvalsstarfsfólki og stjórn. Það er virkilega ánægjulegt að sjá að klúbburinn hefur nú loksins svigrúm til að hefja framkvæmdir við Grafar holtsvöll og vil ég hrósa klúbbnum fyrir það. Eina sem ég hef hef raun verulegar áhyggjur af er fækkun ungra kylfinga í klúbbnum og tel það að langmestum hluta orsakast af ófullnægjandi æfingaaðstöðu yfir vetrartímann sem er því miður ekki lengur samkeppnishæf við aðra golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Miðað við það sem maður hefur heyrt af áformum um byggingu hús næðis fyrir vetraræfingar o.þ.h. hef ég samhliða áhyggjur af því að það vanti verulega upp á að hugsað sé nægjanlega stórt í þeim efnum. Við erum fjölmennasti golfklúbbur Evr ópu og þurfum að reisa byggingu í samræmi við það. Í húsinu þurfa að fara saman æfingar fyrir krakkana í starfinu, afrekshópana og aðra fél agsmenn. Með öðrum orðum við þurfum rúmgóða byggingu á nokkr um hæðum með aðstöðu á heims mælikvarða, þar sem hægt er að æfa öll golfhögg. Ég hef hugsað mikið og lengi um þetta og finnst mér skyn samlegast að hanna húsið þannig að það tengist við Bása og liggi þaðan upp að klúbbhúsinu og tengist því. Allar þessar þrjár byggingar myndu þannig tengjast saman, mynda glæsi ega heild og verða iðandi af lífi meira og minna allan ársins hring. Eitthvað að lokum? Það sem kemur upp í hugann er kannski smá áminning til félaga minna í GR um það að við erum ekki að kaupa þjónustu af fyrirtæki úti í bæ heldur er GR íþróttafélag sem við erum öll hluti af. Við erum með starfsfólk sem vill allt fyrir okkur gera og við eigum að koma fram við það af þakklæti, virðingu og kurteisi. Við eigum að bera hag GR fyrir brjósti, vera stolt af góðu barna- og afreks starfi klúbbsins og ganga vel um eignir okkar. Höldum alltaf í við næsta holl fyrir framan okkur og skiljum við völlinn betri en hann var þegar við komum að honum. Þessir litlu einföldu hlutir auka enn meira á ánægju allra af því að vera í þeim frábæra golfklúbbi sem GR er. Honum fannst eitthvað vera að breytast hann var orðið fljótari að þreytast það var eitthvað minni kraftur og honum var farið að fara aftur Hann fann stundum fyrir taki undir herðablaði og í baki veikleiki í báðum hnjánum og inngrónar neglur á tánum Nú er víst tekið að hausta en fyrir kylfinga hrausta það er bara allt í lagi þó kuldinn bíti og nagi Það er alltaf gaman að hittast þó höggin séu að styttast flugið á boltunum lækkar en forgjöfin hækkar og hækkar En þeim yngri má ýmislegt kenna fólk þarf bara hlutum að nenna torfusnepla að setja til baka og glompurnar þarf að raka Boltaför laga á flötum svo gæðunum ekki við glötum leiðbeinum skussum og slóðum þannig höldum við völlunum góðum. ATLI ÞÓR ÞORVALDSSON: ALDUR OG REYNSLA
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==