KYLFINGUR 2023
Perla Sól Íslandsmeistari í holukeppni Íslandsmótið í holukeppni var haldið við frábærar aðstæður á Hamarsvelli í Borgarnesi upp úr miðjum júlí. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, og Aron Snær Júlíusson, GKG, eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2023. Þetta er í fyrsta sinn sem þau landa þessum titlum en mótið fór nú fram í 36. sinn. Perla Sól lék gegn Huldu Clöru Gestsdóttur, GKG, í úrslitum og hafði þar betur 4/3. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA varð þriðja en hún sigraði Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK, á 19. holu í leiknum um þriðja sætið. Perla Sól er 16 ára en hún er fædd í september árið 2006. Hún er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi eftir sigur hennar í Vestmannaeyjum í fyrra – og hún er einnig ríkjandi Evrópumeistari í aldursflokknum 16 ára og yngri. Kylfingur óskar Perlu Sól innilega til hamingju með árangurinn. Mynd /seth@golf.is .
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==