KYLFINGUR 2023
42 I KYLFINGUR I Hvenær varðstu félagi í GR? Ég byrjaði vorið 2017, þá 45 ára gömul. Af hverju varð golf fyrir valinu? Mér hafði lengi fundist golfið spenn andi en ekki gefið mér tíma í þetta sem 3ja barna móðir. Ég fer svo að vera með manninum mínum árið 2015 og hann er mikill golfari og þá var ekkert annað í stöðunni en að hella sér út í þetta sport ef ég ætlaði eitthvað að fá að hitta hann í ellinni. Ég byrjaði því á að ganga í golfklúbb í vinnunni minni 2016 og bakterían kom nánast strax. Hver er forgjöfin í dag? Ég endaði í 15,2 þetta sumarið, náði að detta í smá stund niður fyrir 15 en er bara mjög sátt, vil vera með forgjöf sem ég ræð við. Korpan eða Grafarholt? Elska báða velli en Korpan er aðeins of ar í röðinni. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Mér hefur gengið bara upp og niður eins og eflaust er algengt í þessu sporti. Þetta er samt alltaf gaman, það er aðal atriðið. Ég hef náð einhverjum sigrum, verið nokkrum sinnum í verð launasæti í Meistaramóti en hef ekki enn náð að sigra. Það verður vissulega erfiðara samt eftir því semmaður dett ur neðar í forgjöf. Hefurðu farið holu í höggi? Já, mér tókst að afreka það í sumar. Sló með driver á sjöttu braut í Grafarholti. Stefnan tekin í brekkuna hægra megin með þeim tilgangi að boltinn leki inn á flöt sem tókst það vel að hann lak alla leið ofan í holu. Eftirminnileg atvik eða skemmti legar sögur? Maður á mjög margar góðar minningar úr golfi en eitt skipti þegar ég var að spila Leiruna í Keflavík þá var ég að spila minnir mig 6. braut og á henni er vatn eða öllu heldur drullupollur og kerran mín var með bilaðar bremsur. Ég var með fallegan hvítan golfpoka og kúlan mín lenti nálægt þessum polli. Ég lagði kerrunni og fór að einbeita mér að næsta höggi en áður en ég vissi af var kerran farin af stað og stefndi á fullri ferð ofan í pollinn. Ég stökk til en náði ekki að bjarga þessu og kerran með hvíta pokanum fór á kaf í drull unna og ég nánast á eftir til að bjarga því sem bjargað varð. Vægast sagt ógeðslegt og það tók ansi marga þvotta og fyrirhöfn að ná pokanum hreinum – en ég kláraði hringinn engu að síður. Og lét laga bremsurnar að sjálfsögðu. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Þegar stórt er spurt. Það koma tvö nöfn upp í hugann, það er vinur minn Örn Sölvi Halldórsson og svo kylfing urinn Þórður Rafn Gissurason, en ég vann verðlaun í móti þegar ég spilaði hring með honum. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Þetta er mjög erfið spurning því ég elska alveg nokkra golfvelli en verð að nefna Vestmannaeyjar fyrir íslenska velli og Lo Romero fyrir erlenda velli. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? GR er að gera marga góða hluti en vissulega er eitt og annað sem betur mætti fara. Rauðu teigarnir eru oft slæmir en það er vissulega verið að bæta það hægt og rólega. Leikhraðinn er klárlega vandamál eins og flestir hafa upplifað og ég myndi halda að færri félagar myndu leysa málið en aðsóknin er auðvitað mikil. Eitthvað að lokum? Mig langar til að vekja athygli á kvenna nefnd GR en ég er í þeirri nefnd og búin að vera í 3 ár. Þetta eru konur sem eru til í að gefa tíma sinn í að skipu leggja ýmis mót og viðburði fyrir konur í GR og eftir að ég gekk í þessa nefnd hef ég eignast margar góðar vinkonur í GR og kynnst mikið af frábærum kon um. Við erum alltaf til í að fá fleiri hendur svo endilega ef einhverjar eru áhugasamar má pikka í okkur í nefnd inni, allar upplýsingar er að finna á GR Golf síðunni. Kristín Halla Hannesdóttir: ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ!
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==