KYLFINGUR 2023

Var einhver golfkennsla í boði á þessum árum? Um kennslu, án félaganna var ekki mikið úr að velja, en þó fór ég í kennslu til Þorvaldar Ásgeirssonar, en hann og faðir hans ráku heildsölu með golf­ kylfur og kerrur og annan íþróttabúnað. Þá eignaðist ég fyrsta golfsettið mitt sem þótti aldeilis fínt, því hinn þekkti golf- og skíðamaður Úlfar Skæringsson hafði átt settið, en fljótlega kom í ljós að settið var „stiff“ og hentaði mér sem byrjanda því engan veginn! Eftirminnilegir félagar? Fljótlega kynntist ég mörgum góðum félögum í klúbbnum sem allir tóku mér vel. Þar má nefna Arnkel B. Guðmunds­ son og Geir Þórðarson en þeir voru golffélagar og bókbindarar, svo spilaði ég mikið með Ólafi Hafberg og Hannesi Hall. Einnig voru þar eldri kylfingar svo sem Jón Thorlacius, Ingólfur Isebarn, Ólafur Loftsson, Óttar Yngvason, Einar Guðnason, Sveinn Snorrason og bræðurnir Vilhjálmur, Tómas og Þor­ varður Árnasynir, Jóhann Eyjólfsson og Páll Ásgeir Tryggvason, allt miklir heið­ ursmenn. Fljótlega fór ég svo að taka þátt í mótum, en þá voru alltaf laugardags­ mót kl. 14.00, oftast leiknar 9 holur. Að móti loknu varð oft glatt á hjalla í Öskjuhlíðinni! Varstu í einhverjum stjórnarstörfum fyrir GR? Ekki var það nú mikið en var þó í kapp­ leikjanefnd með Ingólfi Isebarn og Arn­ keli B. Guðmundssyni og fleirum á ár­ unum 1962 til 1968, þá vorum við fluttir í Grafarholtið. Þó ég tæki þátt í mörgum mótum á þessum árum, unn­ ið fá, hafði ég mig aldrei í að taka þátt í Íslandsmótum í golfi. Fjölskyldan? Árið 1962, þá 25 ára, gaf ég konunni minni, Báru Björgvinsdóttur, golfsett sem ég keypti hjá Þorvaldi Ásgeirssyni, sem þá kenndi golf og fylgdu þá 5 klst. golfkennsla með í kaupunum. Þá byrj­ aði golfið fyrir alvöru!! Holu í höggi? NEI, því miður. En Bára konan mín fór holu í höggi á 11. holunni á Setbergs­ vellinum árið 2002. Hjóna- og parakeppnin 1966. Hildur Kristinsdóttir og Gunnar Þorleifsson höfðu sigur. Á myndinni tekur frú Hildur við viðurkenningu úr hendi formanns kappleikjanefndar Hilmars Herbertssonar. Ólafur Ágúst Ólafsson stórkylfingur fylgist með álengdar. Mynd: Kylfingur.is/Úr safni Viðars Þorsteins­ sonar. Félagarnir Hilmar og Geir Þórðarson á leið í golf á Grafarholtsvelli 1967. Mynd: Kylfingur.is/Úr safni Arnkells B. Guðmundssonar. Hilmar undirbýr upphafshögg á Landinu á Korpúlfsstaðavelli. Mynd: HBK.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==