KYLFINGUR 2023

56 I KYLFINGUR I Fórstu erlendis til að leika golf? Fórum í fyrstu golfferðina til út­ landa með golffélögum úr GR til Skotlands og var spilað á „Turn­ berry“. Vorum þar í 5 daga en hópurinn var í viku eða 9 daga. Við hjónin fórum síðan áfram tvö ein til Spánar (Malaga) og spiluðum við Englendinga og Spánverja á gamla Pioener golf­ vellinum, (vorum þar í 10 daga). Fórum svo að fara í golfferðir, fyrst tvö ein, til Þýskalands og Austurríkis og keyrðum um á bílaleigubíl. Síðan fór ég að fara í skipu­ lagðar golfferðir til Skotlands, meðal annars til North Bewerik og vorum á Marine Golf Resort og ég var í herbergi með Sverri löggu (Sverri Guðmundssyni) en hann sagðist ætla að passa upp á strákinn! – en ég var þá lang­ yngstur í hópnum. Síðan fór ég einnig til Glasgow og spilaði ýmsa þekkta golfvelli, var þar með Nes­ klúbbnum. Í þeirri ferð voru m.a. Sgurður „læknir“ Guðmundsson, Jón Árnason, Hilmar Steingríms­ son, og Hannes Hall. Spilaði einng hring á St.Andrews golfvellinum fræga. Frá árinu 1979 fóru Sam­ vinnuferðir-Landsýn að fara skipu­ lagðar golfferðir til Spánar og var þá Kjartan L. Pálsson fararstjóri (KLP). Fyrsta ferðin var til Mall­ orca, en við fórum ýmist þangað eða til Kanaríeyja í nokkur ár. Á Kanarí spiluðum við aðallega á Campo de Golf Maspalmos­ vellinum, Salobre og BANDAMA sem er talinn einn af elstu golf­ völlum Spánar. Þar kynntumst við mörgum frábærum félögum, ung­ um sem og öldnum. Þar á meðal Haraldi Sumarliðasyni og Sigur­ björgu Sigurjónsdóttur konu hans, Súpugengið frá 1991. Fv.: Jóhannes Óli Garðarsson og Hulda Jóhannsdóttir, Hilmar Herbertsson og Bára Björgvinsdóttir, Ögmundur Guð­ mundsson og Kristín Guðjónsdóttir, Jóhann Jón Jónsson og Margrét Egilsdóttir. Myndin er tekin í júli 2003 við Golfskálann í Hveragerði.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==