KYLFINGUR 2023

Púttmót Kvennastarfið byrjaði í janúar með golfa.is púttmótaröð þar sem þátttökumet var slegið. 182 konur tóku þátt í mótinu sem endaði með stórskemmtilegu og fjölmennu lokahófi. Þrjár efstu voru: 1. sæti á 84 höggum - Alda Jóhanna Gunnlaugsdóttir 2. sæti á 85 höggum - Sólveig Pétursdóttir 3. sæti á 85 höggum - Bertha Kristín Jónsdóttir. Trackman mótið GR konur héldu í fyrsta skipti mót í Trackman hermum í samstarfi við Golfhöllina. 38 konur skráðu sig til leiks. Spil­ aðar voru 18 holur í Grafarholti. Í 1.-2. sæti voru jafnar þær Auður Arna Arnardóttir og Guðrún Ýr Birgisdóttir með alls 39 punkta. Í 3. sæti var Þórkatla Aðalsteinsdóttir með 38 punkta. Einnig voru veitt verðlaun fyrir að vera næst holu á 2. braut en það var Þórunn Elfa Bjarkadóttir sem var 4,5 m frá holu, og lengsta upphafshögg á 15. braut sem Kristín Elfa Ingólfsdóttir átti, Alda Jóhanna Gunnlaugsdóttir púttmeistari 2023. Kvennanefnd Golfklúbbs Reykjavíkur 2022–2023. F.v.: Auður Arna Arnardóttir, Karen Guðmundsdóttir, Guðrún Íris Úlfarsdóttir – gjaldkeri, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, Halldóra Jóhannsdóttir, Aðalbjörg Ársælsdóttir og Kristín Halla Hannesdóttir. Á myndinni má sjá Margréti Þorvaldsdóttur og David Kolev, golf­ kennara hjá Golfhöllinni afhenda þeim Guðrúnu Ýr og Auði Örnu verðlaunin. I KYLFINGUR I 63

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==