KYLFINGUR 2023

64 I KYLFINGUR I alls 190,2 m. Vinningshafarnir voru leystir út með gjafabréf­ um frá Golfhöllinni. GR konur stefna á að endurtaka leikinn í haust og bjóða uppá mót í Trackman hermi. Vormót Áætlað var að hafa vormót í lok maí hjá Golfklúbbi Suður­ nesja og ætluðu GR konur að fjölmenna í mótið. Mótið fylltist fljótt enda konur spenntar að komast út á völl enda tafir á opnunum valla á Höfuðborgarsvæðinu. Veðurguðirnir voru okkur því miður ekki hliðhollir svo það þurfi að blása mótið af. Gengur vonandi betur næsta vor. Sumarmótaröð í samvinnu við TA sport Stærsti viðburðurinn okkar í sumar var hin árlega sumar­ mótaröð sem að þessu sinni var haldin í samstarfi við TA Sport ferðaskrifstofu. Leiknar voru 8 umferðir ýmist á Korpu eða Grafarholti og oftar enn ekki lék veðrið við okkur. 141 kona tók þátt í mótinu og var það Hafdís Hafsteinsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari með hvorki meira né minna enn 169 punkta úr 4 hringjum. Önnur varð Marólína Erlendsdóttir 159 með punkta og í því þriðja Bjarndís Jóns­ dóttir með 157 punkta. Við þökkum TA Sport fyrir samstarfið og GR konum fyrir góða þátttöku í mótinu. Miðnæturmót Miðnæturmót var á planinu í kringum Jónsmessuna í lok júní og var skráning og undirbúningur hafinn en því miður þurfum við aftur að aflýsa vegna veðurs. Þar sem hugmyndin er góð munum við stefna á samskonar mót aftur næsta sumar. Nýliða- og háforgjafarmót Í ágúst var svo sú nýjung að haldið var nýliða- og háfor­ gjafarmót fyrir þær sem voru með 32 eða hærra í forgjöf. Þetta mót heppnaðist afskaplega vel og var mikil ánægja með það. Mótið var 9 holu mót sem var leikið á Landinu. Dómari var á mótinu sem var með reglufræðslu við ræsingu og einnig úti á velli sem mæltist vel fyrir. Við munum klárlega hafa nýliðamót aftur næsta sumar og þá bjóða upp á fleiri pláss þar sem færri komust að en vildu þetta árið. 9 holu haustmótaröð í samvinnu með golfa.is Önnur nýjung þetta sumarið var 9 holu haustmótaröð. Leik­ ið var í 2 forgjafaflokkum, 0–31,9 og 32–54. Verðlaunahafar í haustmótaröðinni. Fv.: Ragnheiður Guðlaugsdóttir, Kristín Halla Hannesdóttir, Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir, Sigríður Rafnsdóttir ásamt Katrínu Garðarsdóttur eiganda golfa.is Verðlaunahafar úr nýliðamótinu frá vinstri: Margrét Theódórsdóttir hlaut nándarverðlaun á 22 braut, Oddný Anna Kjartansdót lenti í öðru sæti í mótinu, Ólöf Hjartardóttir sigraði og Hulda I. Magn­ úsdóttir varð þriðja. Verðlaunahafar úr Sumarmótaröðinni. Bjarndís Jónsdóttir varð þriðja, Marólína Erlendsdóttir varð önnur og sigurvegarinn Hafdís Hafsteinsdóttir. Verðlaunin voru gjafabréf uppí golferð TA Sport.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==