KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 91 Holukeppni GR var á sínum stað í ár eins og undanfarin ár. Bílaum­ boðið Askja styrkir keppnina sem nefnist Mercedes Benz bikar­ inn. Leikin er útsláttar­ keppni þannig að keppendum fækkar um helming í hverri um­ ferð. Sigurvegari móts­ ins þurfti því að vinna 6 leiki í röð. Það er ekki heiglum hent og hefur engum tekist að vinna mótið í tvígang. Þannig hefur nýr sigurvegari verið krýndur ár hvert frá því að holukeppnin var endurvakin árið 2017. Þar sem ekki reyndist hægt að leika golf í maí mánuði fór keppnin seinna af stað en venjulega en þetta er alltaf jafn skemmtileg keppni. Fyrirkomulagið er þannig að dregið er um það hverjir mætast í fyrstu umferð, keppendur mæla sér mót tveir saman og leika hvor gegn öðrum í holukeppni. Hæsta leikforgjöf er gefin 36 högg. Kylfingurinn með hærri forgjöfina fær mismuninn á forgjöf þeirra keppenda sem mætast og dreifast forgjafarhöggin á holur vallarins sam­ kvæmt forgjafarröð brauta á skorkorti. Sá keppandi sem vinnur fleiri holur vinnur leikinn og kemst áfram í næstu um­ ferð en sá sem tapar leiknum hefur þar með lokið keppni. Það voru 65 keppendur sem skráðu sig til leiks að þessu sinni. Í fyrstu umferð sátu því 63 keppendur yfir en tveir léku um laust sæti í 64 manna úrslitum. Síðan fækkaði kepp­ endum niður í 32, síðan 16, þá 8 og svo 4 og þá voru tveir eftir sem léku til úrslita. Það var svo Loftur Ingi Sveinsson sem stóð uppi sem sigur­ vegari eftir spennandi úrslitaleik gegn Bernharði Nils Boga­ syni. Mercedes-Benz bikarinn 2023 – Holukeppni GR Loftur Ingi Sveinsson sigurvegari Hér má sjá hverjir komust í 16 manna úrslit og framgangur keppninnar eftir það Loftur Ingi tekur við Mercedes-Benz bikarnum úr hendi Atla Þórs Þorvaldssonar mótsstjóra.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==