KYLFINGUR 2023

Nú í lok september fór fram úrslita­ leikurinn í liðakeppni GR sem í ár bar heitið FootJoy bikarinn. Það voru 19 lið sem skráðu sig til leiks. Liðunum var skipt í fjóra riðla og léku þar öll liðin innbyrðis, en leikirnir í riðlakeppninni fóru fram vikulega. Hver leikur var 9 holur þar sem leikinn var einn fjórleikur og fjórir tvímenningar. Það voru því 6 leikmenn sem léku hvern leik. Í úrslitaleiknum leika hins vegar 8 leikmenn í hvoru liði. Golfhópurinn Nalúk er sigurvegari síðustu þriggja ára og tvö síðustu árin leikið úrslitaleik gegn golfhópnum Ásum. Bæði þessi lið komust áfram í 8 liða úrslitin ásamt Möskva, Skramba, naloH, Pottinum, Forynjum og Lið nr. 1. Skrambi tók sig til og sló út úrslitalið síðustu tveggja ára og mættu síðan liði Möskva í úrslitaleik. Þar voru Möskv­ arnir hins vegar sterkari og unnu góð­ an sigur og þar með FooJoy bikarinn. Í sigurliði Möskva voru þrjár kyn­ slóðir leikmanna úr sömu fjölskyldu. Þetta eru Bogi Ísak Nilson og synir hans Bernhard Nils og Bogi Nils og sonar­ sonurinn Bogi Ísak Bogason. Þeir eru hér á myndinni með bikarinn. Aðrir á myndinni eru Gísli G. Hall og Hjalti Steinar Sigurbjörnsson. Á myndina vantar Stefán Þór Bogason og Gísla Borgþór Bogason. Frá árinu 2016 hafa eftirtaldir golf­ hópar sigrað í keppninni um liðameis­ ara GR: 2016 - Goldbond 2017 - Faxar 2018 - Elítan 2019 - naloH 2020 - Nalúk 2021 - NalúK 2022 - NalúK 2023 - Möskvi OJK-ÍSAM er styrktaraðili keppninnar sem í ár bar heitið FootJoy bikarinn og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðn­ inginn. AÞÞ. FOOTJOY BIKARINN – LIÐAKEPPNI GR LIÐIÐ MÖSKVI SIGRAÐI NOKKUÐ ÖRUGGLEGA Hvenær varðstu félagi í GR? Gerðist félagi árið 2012. Af hverju varð golf fyrir valinu? Boðið var upp á golfkennslu hjá Bern­ hard Bogasyni og eftir það var ekki aftur snúið. Hver er forgjöfin í dag? Forgjōfin í dag er 14,1. Korpan eða Grafarholt? Grafarholt. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Golfið er misjafnt og eftirminnilegasti sigurinn er á kvennamótarōðinni í GR 2022 og eins er ég komst á síðustu stundu í Icelandairmót á Korpu, þurfti að hlaupa á teig en vann síðan mótið. Hefurðu farið holu í höggi? Já, fór holu í hōggi 1996 en var ein og engin vitni. Fór svo daginn eftir og fór aftur holu í hōggi á sōmu holu og þá voru vitni. Eftirminnileg atvik eða skemmti­ legar sögur? Fór til Malasíu og á golfvelli þar stal api nestinu mínu. Boxið var vel lokað og hann er sennilega enn að reyna opna það. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Hōrður Sigurðsson og Siggi Hafsteins. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Lo Romero, gullfallegur þegar hann er í blóma, heima er Oddfellow-vōllurinn í miklu uppáhaldi. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Það þyrfti að laga rástímaskráninguna, lengra á milli teigtíma. Eitthvað að lokum? Frábært kvennastarf í GR og golfið er fyrir alla. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Laufey V. Oddsdóttir: 92 I KYLFINGUR I

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==