Fréttablað Eflingar 6. tbl. 2018

13 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S ASÍ-Ung Stefnumál ASÍ-UNG, frá þingi samtakanna Aldurstengd launamismunun verði afnumin ASÍ-UNG kom saman til síns fimmta þings, föstudaginn 14. september. ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks á aldrinum 16–35 ára, innan verkalýðshreyfingarinnar. Hlutverk ASÍ-UNG er að tryggja að hagsmuna- mál ungs fólks á vinnumarkaði séu alltaf á dagskrá Alþýðusambandsins. Á þinginu var m.a. fjallað um hlutverk stéttarfélaga og hvað beri að leggja áherslu á í komandi kjarasamningum. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Kristján Þórð- ur Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR fluttu erindi og tóku síðan þátt í pallborðsumræðum, ásamt tveimur stjórn- armönnum ASÍ-UNG, þeim Hafdísi Ernu Ásbjarnardóttur og Eiríki Þór Theódórssyni. Líflegar umræður spunnust um stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og í lok þingsins var eftirfarandi ályktun samþykkt: • Þing ASÍ-UNG ályktar um nauðsyn þess að marka skýra stefnu í húsnæðismálum til þess að tryggja ungu fólki húsnæði við hæfi. ASÍ-UNG telur það vera grundvallar- atriði að allir hafi möguleika á öruggu búsetuformi sem hentar á viðráðanlegum kjörum. • ASÍ-UNG krefst þess að persónuafsláttur verði hækkaður þannig að lágmarkslaun verði skattlaus. • ASÍ-UNG krefst þess einnig að aldurstengd launamismunun verði afnumin með öllu enda er hún klárt brot á mannréttindum. Jafnframt gerir ASÍ-UNG kröfu um að ungt fólk eigi sæti við samningaborðið til þess að tryggja hagsmuni þess. • ASÍ-UNG leggur ríka áherslu á að vinnu- eftirlit verði aukið og viðurlög vegna brota á vinnustað verði hert. • Þing ASÍ-UNG leggur áherslu á jafnvægi milli einkalífs og vinnu. Brúa þarf bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og auka orlofs- rétt vegna vetrarfría í skólum. Ný stjórn ASÍ-UNG var kosin á þinginu: Aðalstjórn: Alma Pálmadóttir , Efling, Gundega Jaunlina , Hlíf, Karen Birna Ómarsdóttir , Aldan, Margrét Júlía Óladóttir , FVSA, Eiríkur Þór Theodórs- son , StéttVest, Sindri Már Smárason , AFL, Ástþór Jón Tryggvason , VLFS, Aðalbjörn Jóhannsson , Framsýn og Margrét Arnars- dóttir , FÍR. Varastjórn: Kristinn Örn Arnarson , Efling, Ólafur Ólafs- son , Eining Iðja, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir , Eining Iðja, Birkir Snær Guðjónsson , AFL og Elín Ósk Sigurðardóttir , StéttVest. Fulltrúar Eflingar á þingi ASÍ-UNG. Fv. Kristinn Örn Arnarson, Ingólfur Björgvin Jónsson, Þorsteinn Gunnlaugsson, Jamie McQuilkin, Oddný Ófeigsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar sem var með erindi á þinginu.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==