Fréttablað Eflingar 6. tbl. 2018

14 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Launakönnun Gallup-könnun Niðurstöður úr nýrri launakönnun Gallup framkvæmir launakönnun fyrir Eflingu- stéttarfélag á ári hverju og veitir mikilvægar upplýsingar um kjör félaga. Könnunin er framkvæmd í september þar sem spurt er út í laun svarenda fyrir ágústmánuð. Verulega dregur úr hækkun heildarlauna en hún er 2% á milli ára að meðaltali, miðað við 10% árið áður. Á sama tíma lengist vinnutím- inn um tæplega eina klukkustund á viku og vinnur félagsfólk nú að meðaltali 46,8 klukku- stundir á viku miðað við fullt starf. Fjárhags- áhyggjur aukast og hefur tæpur helmingur félaga miklar áhyggjur af eigin fjárhagsstöðu. Meðalheildarlaun karla eru um 523 þúsund krónur fyrir ágúst á þessu ári en talsvert lægri hjá konum, eða um 412 þúsund krón- ur á mánuði fyrir fullt starf. Leiðbeinendur á leikskólum og frístundaheimilum eru, líkt og í fyrra, með lægstu heildarlaunin eða 358 þúsund krónur á mánuði að meðaltali en sá hópur upplifir jafnframt mest álag í starfi. Skrifstofufólk, stjórnendur og sérfræðingar auk bílstjóra eru með hæstu launin meðal Eflingarfólks eða um 573 þúsund krónur að meðaltali. Húsnæðismál eru stór þáttur kjaraviðræðna sem nú eru að hefjast, einkum gagnvart ríki. Slæmt ástand í húsnæðismálum kemur ekki síst illa við félaga Eflingar. Hlutfall félagsfólks sem býr í eigin húsnæði minnkar frá því í fyrra úr 44% í rétt rúm 40%. Að sama skapi hækkar hlutfall leigjenda, úr 33% á síðasta ári í 40% 2018. Hækkun heildarlauna Eflingarfólks heldur ekki í við verðbólgu Þegar horft er til heildarlauna er hækkun frá ári til árs lítil eða 2% að meðaltali á meðan að almenn hækkun heildarlauna á samsvar- andi tíma var 5% skv. tölum Hagstofu Íslands. Þannig fór meðaltal heildarlauna úr 470 þúsund kr. á mánuði í 479 þúsund. Þessi takmarkaða hækkun heldur vart í við verð- bólgu á tímanum sem var 2,2%. Þegar horft er til dagvinnulauna þá er hækkunin meiri eða 5,2% og fer úr 375 þúsund kr. á mánuði í 394 þúsund í meðaltekjur og þar vegur 3% kjarasamningsbundin hækkun frá 1. maí 2018 þungt. Af þessum tölum er ljóst að félagar í Eflingu hafa dregist aftur úr öðrum hópum hvað varðar launahækkanir. Óánægja með laun er talsverð og hefur farið vaxandi frá árinu 2016 en tæpur helmingur svarenda er óánægður með laun sín og einungis 22% eru sáttir við launin. Ekki kemur á óvart að óánægjan helst í hendur við launastigann en 70% þeirra sem að hafa mánaðarlaun undir 350 þúsund krónum eru ósáttir við launin. Að meðaltali telja félagar að hækka þurfi heildar- laun um 80 þúsund krónur á mánuði. Konur eru með 79% af launum karla í heildarlaun á mánuði að meðaltali Heildarlaun karla eru að meðaltali 111 þúsund krónum hærri en heildarlaun kvenna fyrir fullt starf. Heildarlaun karla í fullu starfi eru að meðaltali 523.000 kr. á mánuði og 412.000 kr. hjá konum. Hins vegar er meðaltal heildar- mánaðarlauna allra félagsmanna 473.000 kr. á mánuði og miðgildi heildarmánaðarlauna Hækkun heildarlauna er dræm, fjárhagsáhyggjur aukast og yfirgnæfandi samstaða ríkir um áherslu á hækkun lægstu launa í kjarasamningum. Einn af hverjum fjórum félaga Eflingar búa í leigu- húsnæði og erlendum félögum fer fjölgandi. 450.000 kr. Há laun fárra einstaklinga hafa tilhneigingu til að skekkja launadreifingu og því gefur miðgildi betri mynd af launum þorra félagsfólks. Þegar spurt var hver væru sanngjörn laun fyrir vinnu viðkomandi, þá töldu karlar að þau þyrftu að vera 102 þúsund krónum hærri og konur 91 þúsund krónum hærri að meðaltali á mánuði en nú er. Munurinn á dagvinnulaunum karla og kvenna er mun minni en á heildar- launum eða 33.000 krónur á mánuði. Karlar eru að meðaltali með 406.000 kr. á mánuði í dagvinnulaun á meðan konur eru að meðaltali með 373.000 kr. í dagvinnulaun fyrir fullt starf. Vert er að vekja athygli á því að fjölmennir hópar hefðbundinna kvennastarfa eiga þess ekki kost að vinna fullt starf. Þannig segjast einungis 30% þeirra sem starfa við umönnun vera í fullu starfi en þar er jafnframt meðal- fjöldi vinnustunda lægstur eða 35 klst. á viku en meðaltal fjölda vinnustunda hjá öllum svarendum er 43 klst. Meðaltal heildarlauna fyrir fullt starf í umönnun er 449.000 kr. en sú tala endurspeglar í raun lítinn hluta þess hóps sem starfar í umönnun þar sem flestir eru í hlutastörfum og vinna í vaktavinnu. Lægstu launin hjá leiðbeinendum og leikskólastarfsmönnum Af einstaka starfsstéttum eru leiðbeinend- ur á leikskólum og frístundaheimilum með lægstu dagvinnu- og heildarlaunin að meðal- tali fyrir fullt starf eða 353.000 kr. í dagvinnu og 363.000 kr. í heildarlaun. Leiðbeinendur á leikskólum eru jafnframt langósáttastir með laun sín þar sem 8 af hverjum 10 eru mjög Í árlegri Gallup viðhorfskönnun má finna margar athyglisverðar niðurstöður. Í ár var horfið frá samstarfi við Hlíf í Hafnarfirði, VSFK í Keflavík og Stéttarfélag Vesturlands sem áður mynduðu Flóabandalagið. Öll áhersla er nú á að kanna kjör félagsfólks Eflingar. Niðurstöðurnar hafa mikla þýðingu fyrir stefnumótun félagsins þar sem að þær endurspegla kjör félagmanna og viðhorf til mikilvægra mála sem snerta starf þess. Þessar upplýsingar eru sérlega mikilvægar í aðdraganda kjarasamninga.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==